17. desember 2008
Þennan dag árið 1920 fæddist amma mín Guðfinna Sigríður Jónsdóttir, amma Sigga. Hún hefði semsagt orðið 88 ára í dag. Ætli við byrjum ekki að baka í tilefni dagsins
og sjóðum okkur fisk í kvöldmatinn.
Annars erum við ansi slök, eigum eftir að senda frá okkur jólakortin og jú baka kannski eins og 2-3 sortir. Búið er að búa til eða kaupa allar gjafir nema handa Þórði Loga. Svo er bara að versla í matinn og kaupa jólatré, þrífa og skreyta - nei ég er sko ekkert stressuð!
Fór í stafgöngu í morgun 
Vatnsberi: Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina. Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt.
Það er einmitt það sem ég geri, reyni að finna jákvæðar hliðar á öllum málum og horfi á mótbyr sem tækifæri. Við vorum nefnilega að fá að vita að fjárvetingar til stofnunarinnar dragast saman um 20%.......jebbs.