Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Allir að hlusta....

08. desember 2008 klukkan 13:48
Allir að hlusta á jólaútvarp félagsmiðstöðvarinnar  algjör snilld Wink
Hæ hæ

langt síðan ég hef bloggað síðast eða farið bloggrúnt sá að þú hafðir kommentað á síðuna mína svo ég kom til að veita þér skokk-innblástur hehe. Sé að þú hefur verið að skokka svolítið undanfarið, glæsilegt.

Vá hvað ég kannast við svona lægðir í hreyfingunni. Fyndið hvað maður þarf alltaf að semja við mann sjálfan. Maður veit að þetta er hollt fyrir mann, að manni líður betur eftir á, að þetta er meira að segja ekki svo leiðinlegt þegar maður er farinn af stað en samt koma alltaf tímabil þar sem maður bara nennir alls ekki upp úr sófanum.

Besta ráðið finnst mér vera að kíkja á gamlar myndir og gamlar vigtartölur og sjá hvað árangurinn er mikill síðan við byrjuðum. Lesa um aktíft fólk, eða skokksögur á netinu eða skemmtilegar, spennandi og framandi göngusögur. Svo er bara að peppa mann upp í huganum, sjá sjálfa sig fyrir sér í skemmtilegri hreyfingu, kraftmikil, aktífl og drífandi og svo að gefa sér síðan smá spark í rassinn.

Hafðu það gott á aðventunni

Kveðja Drekinn stóri
#1
08. desember 2008 klukkan 22:13

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.