Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

þá kom löggumann...... og við vorum að spá í að hordast

03. desember 2008 klukkan 09:39
Eigum við ekki bara að "Hordast" í dag? sagði vinnufélagi minn í morgunkaffinu....
Ég: Hvað er það ? ...en fattaði svo að sögnin að hordast kemur af nafninu "Haarde"!!!! Það sem hann átti semsagt við var hvort við ættum nokkuð að gera neitt í dag.

Þetta er sennilega rétt honum miðað við stjörnuspá dagsins af mbl.is: 

Vatnsberi: Hlustaðu á ráð frá þér eldri og reyndari manneskju í dag. En málið er að taka bara einn hlut fyrir í einu.

Annars var saumó í gær hjá Önnu Lísu, það vildi svo skemmtilega til að við fengum lögreglufylgd heim - löggan keyrði semsagt á eftir okkur alla leið en stoppaði okkur ekki, voru greinilega að tékka á bílnum eða eitthvað því þegar við komum á Hvanneyri fóru þeir aðra leið inn á staðinn og biðu svo á biðskyldu við hringtorgið....svolítið fyndið. Við vorum að spá í hvað við ættum að gera til að þeir stoppuðu okkur, hefðum t.d. geta hent ullarkembum út um gluggann eða rásað til á veginum en nei ákváðum að vera ekkert með svoleiðis stæla....horduðumst semsagt eins og löggan!
hahaha þið hefðuð átt að kasta ullinni
#1
03. desember 2008 klukkan 11:30
 
Silla
Hellllllú....
bara að kasta á þig kveðju
Sjáumst á morgun, hlakka mikið til!!! Alltaf svo mikill hlátur og gaman þegar þessi hópur kemur saman.... úhú ekki leiðinlegt!!!
#2
05. desember 2008 klukkan 10:08

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.