Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Sparnaðarráð dagsins

02. desember 2008 klukkan 14:14
Alltaf gaman að gera aðra forvitna.... jú Margrét þú verður bara að koma, það verður ekkert gefið upp hér en varðandi það að panta tíma þá er það óþarfi því ég oftast heima eftir vinnu Wink Hlakka til að sjá þig.

Í morgun var á einni útvarpsstöðinni liður sem hét sparnaðarráð. Ég sperrti upp eyrun og hélt að hér væri stóri sannleikur á ferð..... og hvert haldið þið að sparnaðarráðið hafi verið??? Hættið að kaupa pakkaskraut, þess í stað kaupið þið appelsínur og þurrkið þær og bindið utan á pakkana.....sé ekki í fljótu bragði sparnaðinn, þar sem appelsínurnar kosta og einnig rafmagnið svo ég tala nú ekki um mengunina ...því það fer slatta mikið eldsneyti í að flytja appelsínurnar hingað með tilheyrandi útblæstri svokallaðra gróðurhúsalofttegunda....og þetta er kallað SPARNAÐUR! Ég hefði haldið að það hefði verið allt eins hægt að sleppa pakkaskrautinu því þetta fer allt saman í ruslið. EÐA að gera eins og Berglind vinkona mín og stórfrænka þ.e. að klippa út jólamyndir úr öllum auglýsingabæklingunum sem flæða inn um bréfalúguna hjá manni og líma utan á pakkana....fínt skraut það og svo tala nú ekki um að það geta allir í familíunni tekið þátt Wink
Þetta var sem sagt SPARNAÐARRÁÐ DAGSINS í boði Berglindar en ekki ónefndrar útvarpsstöðvar.......
Já skrýtinn sparnaður... Ég hef í mörg ár notað Byko bæklinga og aðra glysbæklinga til að pakka inn gjöfum.. Best væri náttúrulega mengunarlega séð að segja nei við ruslpósti..
Ég skil ekki alveg þetta með appelsínurnar... Og hvað þá pakkaskraut.. Ég hef nú bara látið nægja pappír og band... (stundum afgangslopa)...
Bestu kveðjur af hólnum...
#1
02. desember 2008 klukkan 23:08

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.