ekkert laufabrauð um helgina....
28. nóvember 2008 klukkan 09:05
Nú er langþráður föstudagurinn 28. nóv runnin upp. Seinnipartinn í dag var meiningin að renna af stað norður í laufabrauðsgerð en það verður ekkert af því vegna þess að stóri strákurinn minn er kominn með hita. Hann hringdi í mig þegar hann kom úr skólanum í gær og sagðist halda að hann væri að verða lasinn - sem reyndist rétt, drengurinn var með 39°hita. Þannig að helgin veðrur eitthvað öðruvísi en stefnt var að og ætli við reynum ekki bara að dunda okkur við jólaföndur og jólagjafagerð um helgina.
Held við gerum því góða ferð norður um jólin í staðin......
Held við gerum því góða ferð norður um jólin í staðin......
Góða skemmtun í jólaföndri og gjafagerð :)
Kv. Margrét