Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Jeijjjjjj!

17. nóvember 2008 klukkan 08:58
Búin að fela enda og á bara eftir að skola úr, þurrka og pressa SKOKKINN LaughingLaughingLaughing
Næsta mál er að hefjast handa við jólagjafirnar.
Helgin var góð. Ég þreif húsið hátt og lágt, glugga og skápa en á þó eftir að taka skápa og glugga í svefnherbergjum, stefni á að klára það um næstu helgi. Okkur var boðið í mat á laugardagskvöldið, Stefán Snær keppti á A móti í badmintoni og komst í undanúrslit en hann er alltaf að færast ofar á styrkleikalistanum Wink
Sunnudagruinn var letidagur og endaði með kvennfélagshittingi í gærkvöld þar sem konurnar mættu með handavinnuna sína og einhverjar lærðu að hekla jólabjöllur á jólaseríu - bara gaman.
Vikan framundan verður líklega annasöm en ég er í bingónefnd og þarf að fara að biðja um vinninga í verslunum og fyrirtækjum hér og þar. Bingóið verður fimmtudagskvöldið í næstu viku. Síðan erum við að undirbúa afmæli skógræktarfélags Borgarfjarðar en haldið verður upp á það á sunnudaginn næsta.
Hreyfingin er enn í tíunda sæti, ég hef bara ekki tíma til að fara út að skokka og þarf ég að leggjast yfir þetta, greina vandann og drífa mig af stað. Ég sé ekki að ég skokki 10 km í desember með þessu áframhaldi. Ein ástæðan fyrir því að ég fer ekki út að skokka er m.a. að það er svo mikið myrkur alltaf hreint Yell og náttblinda ég er ekki mikið fyrir það að leggja mig í lífshættu í myrkrinu!
Sjáum til hvað ég geri til að finna lausn á þessu.
 
Guðrún Pálma
Til hamingju með skokkinn Sigga mín , langflottust þá er að byrja í húfunum .....
Það er komin prinsessa í Túngötuna 17 merkur kom um kvöldmatarleytið 16 nóv
#1
17. nóvember 2008 klukkan 09:43
Heil og sæl..
Andsk.. Missti ég af kvenfélagsfundinum.. Humm.. enda ekki formlega í Kvenfélaginu.. en hefði viljað koma.. Flott hjá þér að klára skokkinn... En þá er bara að halda áfram í skokkinu.. hehe... En án gríns þá held ég að þú sért alveg að fara að hlaupa 10 km í desember... Svona fitt og flott.. kauptu þér bara hausljós... Þegar ég var trimmari (í öðru lífi).. þá hljóp ég alltaf 5 km.. en einn daginn þá bara ákvað ég að snúa við og hlaupa sömu leið til baka.. Blés ekki úr nös og eftir það hljóp ég alltaf 10 km... Ég held að bilið á milli 5 og 10 sé ekki gasalegt...
Bestu kveðjur frá Álfhólnum
#2
18. nóvember 2008 klukkan 00:49
Nei skokkurinn er sko ekkert of lítill, hann passar nákvæmlega og þú ert ekkert smá flott í honum.
Ég sit hét heima með slagsíðu, annað brjóstið er ca helmingi þyngra en hitt, ég er að venja Berg af brjósti og það hratt. Var fárveik þegar ég kom heim frá þér á laugardaginn, var með júgurbólgu og háan hita.

Ég held að þú náið að hlaupa 10 km í des, þú deilir þessu bara niður á nokkra daga heheheheh
það mundi ég gera:)
#3
18. nóvember 2008 klukkan 08:22
Ég ætti kannski að læra að tala, fara til talkennara eiða eitthvað, það er þetta með r-ið....
#4
18. nóvember 2008 klukkan 08:25

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.