Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Kominn tími á stjörnuspártúlkun.....

13. nóvember 2008 klukkan 11:05
Jæja góðu lesendur, nú finnst mér vera kominn tími á að ég skelli inn einni stjörnuspá af mbl.is:

Vatnsberi: Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast þín eigin viðbrögð. Finndu allt dót sem þú notar ekki lengur og gefðu það til að styðja gott málefni.

Okey og hvernig á ég að túlka þetta?? Ég verð nú að segja að ég veit fátt eitt skemmtilegra en að mér sé komið á óvart og þess vegna bíð ég spennt og svo er það hitt með viðbrögðin Surprised Seinna atriði sem þarna er nefnt það er með allt dótið sem ég á að losa mig við.....ó já það skal ég sko gera - fer í það um helgina að skúra, skrúbba og bóna og ætli ég muni ekki losa slatta af skápum og já gefa þá í gott málefni.
Þá vitið þið hvernig þið getið látið stjörnuspá stjórna lífi ykkar!!! Laughinghehehe.

Annars er bara allt í góðu hér nema það að ég kem mér ekki af stað í skokkgírinn aftur eftir Danmerkurferðina - ætli það sé ekki ferðaþreytan. Ég er hins vegar búin að setja mér plan, núna frá og með deginum í dag ætla ég að fara út að ganga annan hvern dag og skokka hinn og þá bara hringinn (4,5 km) eftir viku ætti ég að vera komin í gírinn til að halda áfram með áætlunina þ.e.a.s. að auka vegalengdirnar aftur.

Jæja best að halda áfram að gera eitthvað af viti......Kiss
Hvernig gengur með kjólinn. Ég sá að það var rífandi gangur í saumaklúbbnum um daginn, ert þú ekki í prjónastuði.
#1
13. nóvember 2008 klukkan 12:17
júbb ég er í prjónastuði þessa dagana.......verst að nú er ég svo hrædd um að kjóllinn verði of lítill!!!
#2
13. nóvember 2008 klukkan 13:15
 
Guðrún Pálma
Sigga mín ekkert svona bara muna að teygja hann vel þegar hann er blautur. kv Prjóna litla
#3
13. nóvember 2008 klukkan 15:05
Ég sá einmitt auglýsingu um daginn um að það vantaði spariföt á börn 0-18 mánaða til mæðrastyrksnefndar hér fyrir norðan. Sniðugt að gefa föt, bæði spariföt og önnur heil föt til mæðrastyrksnefndar eða í Hjálpræðisherinn á þessum tímum, kannski margir sem eiga ekki fyrir þessu. Ég var einmitt að taka til í skápnum mínum í vikunni og tók út föt sem ég nota aldrei... og hef sum þeirra m.a.s. aldrei notað... og ætla með þetta í einhverja svona stofnun. Tekur bara pláss hjá mér... svo nú "þarf" ég að kaupa mér nýtt í tómuhólfin í skápnum hehehehe:D
#4
14. nóvember 2008 klukkan 11:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.