Smitandi skipulagsæði!!!
11. nóvember 2008 klukkan 09:35
Ég var að lesa bloggfærslu hjá Önnu Lísu þar sem hún lýsir því að hún verði að fara að skipuleggja jólaþrifin..... og þá fór ég að hugsa
Nóvember er að verða hálfnaður og ég er vön að þrífa allt voða vel í október/nóvember þ.e. taka glugga, skápa og ofna. Mér finnst nefnilega ekki hægt að vera að standa í slíkum þrifum í desember þegar maður á að vera að baka. Þannig að ég verð að setja upp plan og það er að nýta næstu og þarnæstu helgi í að þrífa allt voða vel. Um næstu helgi verður það stofan og eldhúsið og kannski forstofan. Um hina helgina (22.-23) verða það herbergin, baðherbergið og þvottahúsið (enda alltaf á því). Ég ætla nefnilega að vekja athygli ykkar á því að það eru ekki nema rúmlega 2 1/2 vika í fyrsta í aðventu og þá er LAUFABRAUÐSHELGI fyrir norðan 
Annars er allt í góðu gengi, í dag er skokkdagur en ég veit ekki hvort ég kemst í að skokka vegna þess að okkur er boðið í afmæli til Brynjars Snæs seinna í dag, drengurinn er sjö ára. Skokkið fær því kannski að bíða til morguns.

Gangi þér vel í skipulagningunni og þrifunum! :)
Kv. Margrét