Frábært hjá Stefáni, til hamingju með hann.
Já það er sko gott að koma heim, sama hvað er búið að vera gaman, heima er best.
Komin heim
10. nóvember 2008 klukkan 13:42
Þá er ég komin heim, það alltaf jafn frábært að koma heim eins og það er nú alltaf gaman að ferðast.
Dagurinn í dag fer nú bara í að aðlagast hinu daglega amstri, fara í búð og þvo þvott. Ég er reyndar svo heppin að tengdamamma var ráðskona heima hjá mér um helgina og allt voða fínt þegar við komum heim. Þórður og Stefán voru mjög glaðir með heimkomuna líka og Stefán mætti með gullpeninga tvo inn til mín snemma í morgun sem hann hafði unnið á badmintonmóti í Keflavík um helgina, sko minn mann 
Stjörnuspáin fær að fljóta hér með:
Vatnsberi: Bjartsýni er til margra hluta nytsamleg og eiginlega dásamlegt fyrirbæri. Nú er spuni meira virði en rannsókn.
Já það er sko satt, hún Pollýanna er alltaf að virka.....
Ég er einmitt á Höfn núna, svo er það Hella í kvöld og heim á morgun. Vá hvað það verður gott maður lifandi. Hlakka til að hitta þig á miðvikudag! Fá ferðasög og deila minni!
sjáumst