Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Stóð ekki við allt í gær......

30. október 2008 klukkan 09:40
Ég fór ekki út að skokka og ég gerði ekki árás á þvottafjallið..... en ég slakaði á með drengjunum, fór og verslaði, kíkti í handavinnubúðina, eldaði mat og fór á fund.
 Úti er alveg frábært veður, frost, snjóhula og sólin sendir geisla sína á fjöllin í kring. Það er komið skammdegi, það er farið að rökkva ansi mikið seinnipartinn þegar maður kemur heim en þá er eins gott að maður hafi endurskinsmerki sem virka þegar maður er úti á skokkinu....
Dagurinn í dag lofar góðu, ég ætla út að skokka eftir vinnu í dag og svo er ekkert annað á dagskrá nema að vera heima með fjölskyldunni.
 
Margrét
Það er líka það sem stendur upp úr...samveran með fjölskyldunni! Það skiptir miklu meira máli heldur en að vera að höggva skarð í þvottafjallið...skokkið er hins vegar mannbætandi fyrir suma...hentar mér ekki alveg...annars heyrði ég mjög gott spakmæli fyrir þó nokkru síðan: Hver einasta kona á að hugsa vel um móður barnanna sinna...! Mér finnst þetta gargandi snilld...og þú ert náttúrulega að því með því að fara út að skokka... :) Þú ert snillingur mín kæra...langaði bara að bæta því við... :)

Kv. Margrét
#1
31. október 2008 klukkan 09:13
Ása Dóra FinnbogadóttirAaalgjör snillingur!!!! Meiri dugnaðarforka er vart hægt að finna!!!
#2
04. nóvember 2008 klukkan 18:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.