Fundakvöldið mikla
29. október 2008 klukkan 15:37
Það er alveg merkilegt hvað mikið er um að vera til dæmis eru þrír fundir í kvöld og ég þyrfti að vera á þeim öllum! Fundurinn sem ég ætla að láta ganga fyrir er kynning á uppbyggingarstefnunni en samkvæmt þeirri stefnu tekur skólastarfið í Grunnskóla Borgarfjarðar mið af. Mjög áhugavert. En áður ætla ég út að ganga eða skokka, elda mat, þvo þvott og slaka aðeins á! Jamm það er alltaf nóg að gera.
Núna ætti ég til dæmis að vera að lesa grein en það gengur ansi hægt en hún er á dönsku jejeje! Ágætur undirbúningur fyrir námskeiðið í næstu viku en ég er að fara til Danmerkur á viku námskeið um ræktun jólatrjáa
og námskeiðið fer fram á dönsku.
Saumóinn fór vel í gær, ég prjónaði slatta. Stefán Snær passaði bróður sinn á meðan en Haukur var á námskeiðinu "úr mínus í plús" þannig að nú er hann komin með öll "trixin" um það hvernig maður getur orðið ríkur og hvar allir peningarnir manns eru....jú sí!
Það er semsagt allt í góðum gír á Túngötunni.
p.s. hugurinn er á fullu og ég er enn ekki að "fíla" skólann!!!!
Núna ætti ég til dæmis að vera að lesa grein en það gengur ansi hægt en hún er á dönsku jejeje! Ágætur undirbúningur fyrir námskeiðið í næstu viku en ég er að fara til Danmerkur á viku námskeið um ræktun jólatrjáa
og námskeiðið fer fram á dönsku.Saumóinn fór vel í gær, ég prjónaði slatta. Stefán Snær passaði bróður sinn á meðan en Haukur var á námskeiðinu "úr mínus í plús" þannig að nú er hann komin með öll "trixin" um það hvernig maður getur orðið ríkur og hvar allir peningarnir manns eru....jú sí!
Það er semsagt allt í góðum gír á Túngötunni.
p.s. hugurinn er á fullu og ég er enn ekki að "fíla" skólann!!!!
Silla
þetta kemur, þetta kemur... taka þolinmæðina á þetta og STÓRA BROSIÐ :D
#1
30. október 2008 klukkan 10:37