Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Allt í góđu!

28. október 2008 klukkan 14:26
Aðgerðin tókst vel og við vorum komin heim á Hvanneyri um klukkan fjögur í gærdag og svaf stubburinn til hálf sjö í gærkv. fór svo aftur að sofa um hálf tíu og svaf til tæplega sjö í morgun. Við erum bara heima í dag en það stefnir í að hann fái að fara á leikskólann á morgun, því hann er mjög HRESS og talar ekki um neitt annað en að fara á leikskólann.

Annars er dagurinn ósköp venjulegur, skokk seinnipartinn, soðin ýsa í kvöldmat og saumó í kvöld.

Ég hef verið að hugleiða skólann minn mikið að undanförnu, ég er ekki alveg sátt.......og er að spá í að hætta.....Undecided....æi.
 
Sú ráđagóđa
Þú ferð nú ekki að hætta núna þegar aðeins einn mánuður er eftir. Bara þrauka leiðindin
kv. mamma
#1
28. október 2008 klukkan 15:53
 
Silla
Hætta!!!!!!!! Nejjjjjjjjj er það nokkuð í boði???? hehe
Gott að allt gekk vel með stubbinn... bið að heilsa í bæinn
Silla.
#2
28. október 2008 klukkan 18:06
 
Margrét
Gott að allt gekk vel og hann er hress og kátur... :)
#3
29. október 2008 klukkan 09:46

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.