Takk fyrir komuna í bústaðinn um helgina...
gangi ykkur sem allra best í dag, hugsa til ykkar!!!
Kv Silla.
Aðgerð á morgun
26. október 2008 klukkan 17:56
Þá er þessi helgi senn á enda. Draumahelgi alveg hreint og þar spilaði veðrið stærstu rulluna, stillt og bjart og snjór yfir öllu.
Á morgun fer Þórður Logi í aðgerð á Barnaspítalanum, það þarf að fjarlægja rás eða n.k. kviðslit. Málið er að í september fór að verða ansi áberandi að annað eistað var orðið stórt, það var farið með litla manninn til læknis og svo í ómun og kom þá í ljós að ekki var um eiginlegt kviðslit að ræða heldur vökvasöfnun. Þessi vökvasöfnun á sér stað í gegn um rás sem liggur úr kviðarholinu niður í pung. Um þessa rás koma eistun niður en umhverfis þau er himnupoki sem á svo að eyðast ásamt þessari rás í kjölfarið á því að eistun ganga niður, það gerðist ekki og því þarf að kippa þessu í liðinn með aðgerð. Hmmmm ekki viss um að ég nái að útsskýra þetta betur en þið hljótið að fatta
Þetta er semsagt verkefni morgundagsins en aðgerðin tekur smá stund og við verðum komin heim eftir hádegið og ef allt gengur að óskum þá ætti stubburinn að geta farið á leikskólann á miðvikudag.
Annars er bara allt gott að frétta, prjónaskapurinn gengur vel og það að fara eftir´æfingaáætluninni gengur súper vel, átti ekki von á því að þolið væri svona fljótt að koma eins og raun ber vitni.
Jæja best að fara að kíkja á kjötsúpuna sem mallar í pottinum......
Eigið góða vinnuviku.

Silla
#2
27. október 2008 klukkan 08:48
Margrét
Vonandi gekk allt vel í dag...og takk fyrir heimsóknina um helgina! :)
Kv. Margrét
Kv. Margrét
#3
27. október 2008 klukkan 14:30
Silla
Jæja... gekk ekki allt vel í dag????
#4
27. október 2008 klukkan 20:32
Vonandi hefur þetta gengið vel í dag með pjakkinn...
Ég þarf að fá að sjá prjónaskapinn hjá þér...
Já helgin var yndisleg, þessi fallega stilla á Hvanneyri... alveg yndislega falleg helgi.. Og dagurinn í dag var dásamlegur líka.... Synd að vera inni við tölvuna og horfa út á mannlífið...
Bestu kveðjur til ykkar allra
Álfhólsfólkið

#5
27. október 2008 klukkan 22:29
Berglind
Vonandi gekk allt vel í gær.
Óskar Óðinn var ótrúlega spenntur að sjá pabba hans Þórðar Loga í sjónvarpinu í gær, ekki á hverjum degi sem pabbi einhvers sem maður þekkir kemur í kvöldfréttunum.
Jæja best að halda áfram að gera eitthvað að viti, vantar þig samt í kaffi!
sjáumst

#6
28. október 2008 klukkan 08:55
Margrét
Það er greinilega ýmislegt sem maður missir af þegar maður er sjónvarpslaus...! Þá er gott að hafa vefsjónvarpið á ruv.is! :) Hann stóð sig bara vel, kallinn! ;) Flott hjá honum... :)
Kv. Margrét
Kv. Margrét
#7
28. október 2008 klukkan 11:18
kv
Rakel