Hæ hæ - elsku snúlla - dugnaðurinn í ykkur í skokkinu.......ég var einmitt að spá í að kíkja á þig í kaffi - en sá svo hérna að auðvitað ertu í bænum með drenginn....hafðu endilega samband - ég verð líklega heima alla helgina ;)skokkblogg
23. október 2008 klukkan 11:38
Jæja þá er kominn fimmtudagur sem þýðir æfing samkvæmt "planinu" góða, í dag á að ver það sem ég kalla relax með sprettum á milli en það er eiginlega rangnefni. Eiginlega heitir þetta "Fartlek" og á hlaup.is stendur þetta:
Fartlek = hraðaleikur þar sem sprettir (ath. aldrei á fullu) eru mislangir (t.d 150-300 m) með mislöngum hvíldum. Undirlag breytilegt (gras, malarstígar, malbik) og t.d. er gott að auka aðeins hraðann í brekkum. Sem sagt frjálst, en rétt að skokka ca. 1,5 km upphitun og 1,5 km í í lokin. Dæmi um hluta úr fartlek æfingu: Hita upp í 1,5 km rólega, hlaupa 200 m á auknum hraða, hlaupa rólega í 30-60 sek, hlaupa 100 m á auknum hraða, hlaupa rólega í 30 sek, hlaupa 300-400 m á auknum hraða, hlaupa rólega í 1-2 mínútur osv.frv.
Við ætlum semsagt að taka svona æfingu í dag og verður hún í heildina 3-3,5 km (stutt til að byrja með) við byrjum á upphitun 1,5 km, tökum svo spretti og skokk á ójöfnu yfirborði (tún og skógræktarsvæði) og skokkum okkur niður í restina.
Ég ætla að elda steinbít í kvöld og svo er danskt kvöld í sjónvarpinu - Trúðurinn og síðan Nynne - spurning um að fá sér einn Tuborg í tilefni þess
....hugs hugs, nei annars það verður bara íslenskur bjór!
Á morgun förum við með litla manninn til sérfræðings á Barnaspítala Hringsins en allar líkur eru á að hann þurfi svo í litla aðgerð á mánudag. Segi ykkur betur frá því um helgina en þetta er ekkert alvarlegt.
Ég ætla að elda steinbít í kvöld og svo er danskt kvöld í sjónvarpinu - Trúðurinn og síðan Nynne - spurning um að fá sér einn Tuborg í tilefni þess
....hugs hugs, nei annars það verður bara íslenskur bjór!Á morgun förum við með litla manninn til sérfræðings á Barnaspítala Hringsins en allar líkur eru á að hann þurfi svo í litla aðgerð á mánudag. Segi ykkur betur frá því um helgina en þetta er ekkert alvarlegt.
http://asadora.bloggar.is
Ása Dóra Finnbogadóttir
Hæ hæ - elsku snúlla - dugnaðurinn í ykkur í skokkinu.......ég var einmitt að spá í að kíkja á þig í kaffi - en sá svo hérna að auðvitað ertu í bænum með drenginn....hafðu endilega samband - ég verð líklega heima alla helgina ;)#1
24. október 2008 klukkan 10:34