Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Enn eitt - og öppdeit

19. október 2008 klukkan 17:37
Jæja, þá erum við Halla búnar að endurskoða hlaupaprógrammið okkar en það styttist í 10 km hlaupið sem verður í kring um 20. des og því erum við búnar að gera 8 vikna hlaupaáætlun.
Í grundvallaratriðum er prógrammið þannig að við hlaupum fjórum sinnum í viku. Við miðum við að fara á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Við erum alltaf að lengja hlaupin með hverri viku sem líður og er markmiðið að hlaupa lengri vegalengd á laugardögum og taka svo rólegt hlaup á sunnudeginum. Þriðjudagarnir yrðu þannig að við tækjum fulla vegalengd samkvæmt vikuplani. Fimmtudagarnir værueitthvað rólegri en við myndum spretta inn á milli. Smátt og smátt værum við svo búnar að lengja vegalengdina sem við værum að skokka og er markmiðið að í byrjun des verði vegalengdin komin í 10 km og þá væntanlega væri ganga inn á milli svo færu vikurnar fram að keppni í það að auka hlutfall skokksins........ og þá erum við orðnar keppnisfærarWink

Smá "öppdeit" til nánari útskýringa:

vika 43 - 5,5 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 5,5 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 5,5 km.

vika 44 - 6,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 6,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 6,0 km.

vika 45 - 7,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 7,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 7,0 km.

vika 46 - 8,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 8,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 8,0 km.

vika 47 - 9,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 9,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 9,0 km.

vika 48 - 10 km sunnudagur rólegur 4,5, þriðjudagur 10,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 10,0 km.

vikur 49-50-51 fara í að auka "skokkvægið" Verða svipað uppbyggðar og vika 48 ég geri nefnilega ekki ráð fyrir að geta hlaupið svona langt strax....!! EN í viku 51-52 verður svo hlaupið góða Smile Ef ég verð ekki að "meika" þessa áætlun þá breyti ég henni bara.


 
Jóna
Vá hvað þú ert skipulögð!! Ferðu svo alltaf eftir þessum prógrömmum? Alltaf þegar ég geri svona þá virkar þetta í nokkurn tíma og svo kemur eitthvað uppá, t.d. veikindi og þá fer allt í vitleysu!
#1
20. október 2008 klukkan 10:27
ef eitthvað kemur uppá þá endurskoðar maður bara.... stundum gengur þetta upp, stundum ekki...
#2
20. október 2008 klukkan 11:21
 
Silla
DÚLEG..........................:) Tek hattinn ofan fyrir þér!!! Ekkert smá flott!
#3
20. október 2008 klukkan 20:16
flott hjá þér, það er svo hvetjandi að lesa bloggið þitt, ein af andlegu hvatningunum.

Kveðja Drekinn bloggfélagi
#4
20. október 2008 klukkan 21:21

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.