Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Föstudagur enn og aftur

17. október 2008 klukkan 09:40
Það er alveg merkilegt hvað tíminn flýgur áfram, það er kominn 17. október! Það er rétt um tveir mánuðir og ein vika til jóla.
Helgin framundan en ég ætla að undirbúa ritgerðarsmíð, lesa heimildir og eitt og annað. Síðan ætla ég að heimsækja hana Önnu Lísu mína en veikindi hafa bankað uppá hjá manneskju henni nákominni og ekki veitir af stuðningi, knús til þín/ykkar kæra vinkona Kiss 
Síðan er aldrei að vita nema maður fari í skógarferð með drengina Smile

Í dag ætlum við hér á skrifstofunni að mæta á meistaraprófsfyrirlestur. Sherry Curl ætlar að fjalla um MS verkefnið sitt "Áætlanagerð og og rekstur íslenskar skóga í þágu útivistar" Þeir sem hafa áhuga á geta hlustað  með því að smella
hér. Fyrirlesturinn mun hefjast klukkan 14:00 í dag.

Annars segi ég bara góða helgi kæru vinir!
 
Guðrún Pálma
Sæl Sigga hvernig gengur með peysuna ?
Kvitt kvitt fyrir kíkkið.
kv Guðrún
#1
17. október 2008 klukkan 09:55
 
Silla
Góða helgi............
#2
17. október 2008 klukkan 10:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.