Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Er/Var í kvíðakasti

15. október 2008 klukkan 14:33
Ég er í kvíðakasti. PUNKTUR. Fer út eftir 18 daga og verð í viku á námskeiði og var að átta mig á því að íslendingar eru ekki vel séðir úti í hinum stóra heimi. Ég heyrði frásögn af fólki sem er að fara út að borða í Hollandi og þá vindur fólk sér að þeim til að forvitnast hvaða tungumál það sé að tala "Við erum frá Íslandi" segir fólkið upp fullt af stolti og þá segja hollendingarnir "heyrðu við vorum að tapa sparifénu okkar út af ykkur og þið eruð bara úti að borða, skammist ykkar!!!!" Svo er ég búin að lesa allskonar greinar á netinu um það hvað við séum stórhættuleg, algjörir krimmar!
Mannorð okkar er NÚLL Embarassed

En þá er líka alveg brilljant að blogga um kvíðann og nú er ég búin að losa um og get farið að brosa framan í lífið. Algjör snilld þetta bloggWink

Eftir vinnu í dag ætlum við mæðginin í sund og svo til Ingu Dóru í kaffi.
 
Jóna K
Þú segist bara vera Færeyingur eða Finni og málið er dautt
#1
15. október 2008 klukkan 15:37
 
Silla
HAHAHAHHAHA þú segist bara vera Færeyingur mmmmuuuuuhhahhhhahaaa
#2
15. október 2008 klukkan 21:41
 
Margrét
Ætli bloggið hjá mér sé jafn sálfræðilega sinnað að geta losað höfundinn við alls konar andleg vandamál?? ;) Það sakar ekki að prófa...

Mæli annars með því að segjast vera Færeyingur...um að gera að fjölga þeim aðeins...finnar eru svo margir nú þegar! ;)
#3
16. október 2008 klukkan 11:15

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.