Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Í upphafi nýrrar vinnuviku.....

13. október 2008 klukkan 09:07
....þá þykir mér ástæða til að koma með stjörnuspá dagsins í dag af mbl.is:
Vatnsberi: Þú ert vinalegt afl í heiminum. Þú sérð og finnur hversu jafnar allar manneskjur eru. Þeir sem ógnuðu þér áður eru nú innan seilingar og áhugaverðir.
Alveg frábærir þarna á mbl hvað stjörnuspáin er alltaf jákvæð þessa dagana......ótúrlegt en ég held að þetta hafi góð áhrif á þjóðarsálina eða allavega þá sem lesa stjörnuspána Wink

Í gær fórum við Þórður Logi í Háafellsreit í Skorradal og vorum við afhjúpun skiltis en tilefnið var að reiturinn varð 70 ára á þessu ári. Þarna mættu milli 30 og 40 manns og þar á meðal ein kona sem var í gróðursetningunni á sínum tíma. Boðið var upp á flatkökur með hangikjöti, nóa konfekt, kaffi og svala. Þetta var skemmtileg samverustund og það er alveg ótrúlegt hvað það hefur góð áhrif á mann að fara út í skóg hlusta á fuglana og upplifa kyrrðina - lognið!!!!

Dagurinn í dag er aðeins öðruvísi en hann átti að vera en ég hefði þurft að vera í staðlotu í skólanum mínum en því miður kom ég því ekki við, ástæðurnar eru tvær. Annarsvegar er Haukur farinn suður á land þar sem hann þarf að vinna í nokkra daga og er því ekki til taks á morgnana eða seinnipartinn (vegna drengjanna) og hins vegar er veðrið það gott að ég þarf að klára ýmis "útiverk" í vinnunni. Ég er semsagt á leið út í foldina í dag.

Ég kláraði fyrsta verkefnið í skólanum í gær, viðtalsverkefni sem ég ætla að segja ykkur lítillega frá í næstu færslu. Síðan er ég búin með búkinn og aðra ermina á peysunni sem ég er að prjóna. Ég ætla út að skokka seinnipartinn í dag eða í kvöld, fer eftir því hvenær Stefán Snær getur passað. Held ég hafi lítið annað að segja í bili. Eigið góðan dag Smile
 
Árni Gísli litli bróðir
Mikið er ég ánægður með að þú ert líka með svona jólaniðurteljara eins og ég!! Skyldi þetta vera eitthvað sem við öll systkinin gerum??? Það er nefnilega eins og okkur hlakki alltaf meira til jólana en öllum öðrum,,,,allavega í mínum vinahópi!!! ;)
#1
13. október 2008 klukkan 21:37
Já ég hef komist að því í gegn um árin að mömmu og pabba hefur tekist mjög vel upp með að ala okkur upp í góðum jólasiðum og að hlutirnir eru ekki sjálfsagðir....ætli það sé ekki ástæðan? Grænbaunasúpa og eplakaka......held að fæstir teldu það jólamat!
#2
14. október 2008 klukkan 08:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.