Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

"Kreppu" blogg

10. október 2008 klukkan 08:55
Það var talað um það í Kastljósinu í gær að við, íslendingar, værum stödd í eins konar sorgarferli. Við erum enn á afneitunarstiginu en svo ætti eftir að hellast yfir mann vonleysi með öllu því sem því fylgir. Ég get svosem alveg skrifað undir það að sjálfsagt sé fullt af fólki í afneitun og eigi eftir að skella harkalega niður á jörðina, dæmi Korputorgið um síðustu helgi! 
Það var einnig tekið fram í þessari umræðu að það skiptir rosalega miklu máli að við gleymum engum. Það sem átt er við er að við verðum að hugsa um börnin okkar og gamla fólkið, tala saman, gera eitthvað skemmtilegt saman "eyða" tíma saman (mér hefur alltaf fundist skrítið að nota það orðalag að "eyða" tíma með einhv.). Það þarf ekki að kosta mikið að fara í göngutúr, kaffihús, sund, föndra eitthvað og svona mætti lengi telja. Stefán Snær talar mikið um það að það sé kreppa og hún verði kannski í 15 ár og við verðum olíulaus og hvað gerum við þá....? Hugsið ykkur börnin hafa áhyggjur af framtíðinni. Auðvitað stöndum við frammi fyrir stórum vanda en HALLÓ ekki gleyma því að það er lágmark að börnin sofi - fari ekki yfirum af áhyggjum og stressi.
Ég hef áhyggjur af öllu því fólki sem er að missa vinnuna og þ.a.l. lendir í erfiðleikum með lánin sín og alla sína afkomu. Nú er eins gott að við stöndum saman og við höfum sýnt það að við íslendingar erum bara ansi góð í því!
Varð bara að koma þessu frá mér...... ég er í ágætum málum, held vinnunni og get borgað af lánunum mínum en ég/við ætlum að skera ýmislegt niður eins og t.d. jólagjafir, það er hugurinn sem gildir - munið það.
Svo í lokin ætla ég að segja ykkur að við hér í húsinu erum búin að setja þá reglu að við mætum ekki svartklædd í vinnuna, ef maður er í svörtu þá verður maður að lagfæra það með t.d. trefli eða einhverju í lit. Léttum lundina!
Ása Dóra FinnbogadóttirSammála þér Sigga með þetta - flott með að mæta ekki í svörtu - ég ætla sko að hafa það í huga.......og varðandi það að "eyða" tíma með einhverjum - þá finnst mér alltaf betra að velja orð einsog "verja" eða "deila" tíma sínum með einhverjum eða í eitthvað (allavega ef það er skemmtilegt heheh)........

Upp upp mitt geð.......:D
#1
24. október 2008 klukkan 11:00

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.