Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Heilbrigt líferni og ódýr líkamsrækt

09. október 2008 klukkan 09:26
Nú er ég búin að lesa stjörnuspá dagsins á mbl.is:
Vatnsberi: Gríptu tækifærið til að æfa þig vel. Endurtekning er leyndarmál velgengni þinnar. Ýttu þér í gegnum þreytu og leiðindi og þú verður meistari!

Þetta er svolítið merkilegt því ég var að spjalla við eina í gærkvöld sem hefur verið að skokka og hún var að benda mér á að í sambandi við markmiðið mitt að skokka 10 km þann 20.des þá gæti verið heppilegt að finna eitthvert almenningshlaup í kring um þessa dagsetningu til að stefna að. Ég held það sé mjög sniðugt og nú er ég að leita að almenningshlaupi sem væri þá á tímabilinu 15.-31. des. Ef þið vitið um almenningshlaup (nota bene það verður að bjóða upp á vegalengdina 10 km) endilega látið mig vita. Hlaup eru nefnilega mjög sniðug leið til að halda sér í formi, ekki kosta þau neitt extra fyrir utan fatnað og skó en það er búnaður sem maður þarf í öllum íþróttum hvort eð er....... ohhhh hvað ég hlakka til að hlaupa 10 km í desember :)
Ég gerði svolítð annað í gær, ég fór í gegnum vítamínbirgðir heimilisins og raðaði þeim í pilluboxið mitt og nú ætla ég að vera dugleg að muna eftir þessu. Ekki veitir af á síðustu og verstu tímum. Ég tek semsagt: Kalk,
cell activator (frá Herbalife), trefjar, zink og ómega fitusýrur (í fljótandi formi). Það þýðir ekkert annað en að nota það sem er til í ísskápnum á þessum síðustu og verstu tímum.

Smá athugasemd, nýja umsjónarkerfið hjá bloggar.is er ekki alveg að gera sig, næ ekki að vista rétta leturstærð....sorry!
 
Jóna K
Fylgstu með www.hlaup.is
Kv, Jóna
#1
09. október 2008 klukkan 15:19
Hlaup hlaup hlaup.....hehe mátti til með að benda þér á þessa síðu.....
http://www.feykir.is/?p=637

kv. litli bró
#2
10. október 2008 klukkan 07:16
 
Ólöf
Sæl Sigga
Það er alltaf hlaupið gamlárshlaup á skaganum, stutt fyrir þig að skreppa þangað. Síðan er eins og fram hefur komið hér að framan hægt að sjá dagskrána inná hlaup.is
Gengur ekki annars bara fínt?
kv Ólöf Sig
#3
10. október 2008 klukkan 08:56
 
Jóna K
Kíktu á Powerade hlaupin, þau eru nokkur og það er alltaf hlaupið 10km
#4
10. október 2008 klukkan 09:15
Takk fyrir þetta Jóna og Ólöf. Ég mun örugglega horfa á skagahlaupið og svo e.t.v. þessi powerade hlaup...verst að þau skuli vera á fimmtudagskvöldum.....
#5
10. október 2008 klukkan 09:38
 
Hildur í Holti
Hæ, bara að kvitta fyrir að ég kíki stundum hérna inn, sérstaklega þegar mig vantar uppörvun. Vildi óska að ég væri jafn dugleg að setja mér markmið og ná þeim eins og þú.....kannski er ekki öll von úti enn!
#6
10. október 2008 klukkan 10:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.