Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

íslenskt já takk!

08. október 2008 klukkan 11:38
Í kaffitímanum í vinnunni áðan fékk ég mér appelsínu eins og ég geri vanalega á hverjum morgni, allt í lagi með það. Nema hvað að í morgun buðu starfsmenn Hagþjónustu landbúnaðarins (sem eru hér til húsa) upp á  konfekt. Ég fékk mér tvo mola bara til stuðnings íslenskri framleiðslu....en svo fór að síga á ógæfuhliðina þegar ég fékk mér þrjá eða fjóra mola í viðbót!.... eða voru þeir kannski fimm...??! AHHH en ég var að styrkja íslenskt en það er alveg bráðnauðsynlegt á krepputímum Glottandi Reyndar er ég bara bjartsýn á framtíðina, getur maður nokkuð annað?

Smá "update" eftir hádegismatinn.... komst að því rétt í þessu að ég á náfrænda í húsinu, langaafar okkar voru bræður þ.e.a.s. þeir Snælaugur Baldvin og Jón Haraldur Stefánssynir eru forfeður okkar Jóhannesar (sem vinnur hjá Landgræðslunni). Gaman af þessu...... og svo er Berglind sem vinnur hjá BÍ (og er líka með skrifstofu í húsinu) frænka mín, Kristín Ragnheiður langamma mín og Jakob langafi Berglindar voru systkin og þessi Kristín Ragnheiður var gift Snælaugi.....ótrúlega fyndið. 
 
Berglind
Já þetta er gaman, alltaf gaman að finna ættingja sérstaklega svona þegar maður býr langt frá öllum hinum.
Jæja ég verð að fara að gera eitthvað að viti, þessi dagur er búin að fara í algjört rugl bara, ég hef engu komið í verk.
#1
08. október 2008 klukkan 13:45
 
Árni Gísli litli bróđir
Hehe vá hvað þú ert vel að þér í ættfræðinni, ég man sko ekkert svona!! ;)
#2
08. október 2008 klukkan 19:20

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.