1 af 12
05. október 2008 klukkan 13:02
Loksins komst ég út að hreyfa mig í morgun....... ástæður þess að ég hef ekkert farið fyrr en í morgun í október eru margvíslegar og ætla ég ekki að telja þær upp hér en ég er ekki af baki dottin 1 búið 11 eftir 
Við fórum á sauðamessu í gær og allir skemmtu sér vel yfir skemmiatriðum og kjötsúpuáti. Ég dvaldi góða stund við bás handprjónasambandsins en ég þekki eina sem var á þeirra vegum á sauðamessu - mjög áhugavert og skemmtilegt starf hjá þeim og auðvitað keypti ég nýjustu lopaprjónabókina og er búin að ákveða hvað á að gera úrhenni. Við fjölskyldan enduðum svo í kaffi og tertuáti á Þórðargötunni sem fór þannig að Þórður datt og fékk gat á hausinn og enduðum við með hann á heilsugæslustöðinni þar sem einu spori var skellt á hann. Fórum svo eftir það aftur á Þórðargötuna í osta og heita danska kæfu - fínn endir eftir allt saman. Núna er ég á leið upp í Skorradal þar sem ég ætla að taka viðtal við skógarbónda í tengslum við verkefni sem ég er að vinna
Á morgun er vinna, skokk og ferð með IDH og ÁV í handavinnuhúsið........ jebbs!
p.s. Halla þú spyrð hver sé svona sniðugur að hafa milligöngu um eggjasölu í húsinu, svarið er Jóhannes.