Föstudagsblogg
03. október 2008 klukkan 09:56
Í dag er starfsdagur á leikskólanum og sömuleiðis í grunnskólanum. Ég ætla að nota daginn í ýmislegt, t.d. vinnu, nám, hreyfingu og ekki síst fjölskyldu. Stefán Snær á að mæta hjá lækni á eftir en það er endalaust vesen á einni tánöglinni hans og er svo komið að hann verður að láta taka eins og hálfa nögl af stóru tá, ekki gaman það!
Sirrý er þrítug í dag og er hún búin að bjóða í veislu í kvöld. Stefán Snær ætlar að passa. Alveg frábært að eiga sína eigin barnapíu
Úti er alhvít jörð, logn og glampandi sól, hiti kl 9 á Hvanneyri -3,6°C aldeilis fínt veður það.
Á morgun er sauðamessa og allir ætla að mæta eða er það ekki?

Góða helgi allir saman 