Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Septemberuppgjör

30. september 2008 klukkan 09:19
Ég hreyfði mig markvisst 10 sinnum í september. Það er nú bara vel af sér vikið þannig lagað en markmiðið er að gera enn betur í október og hreyfa mig markvisst minnst 12 sinnum.
Skrítið nú er ekki nema rétt um vika síðan ég byrjaði að skokka og í gær fann ég heilmikinn mun á mér. Vandamálið hjá mér er að ég mæðist svo fljótt en ég finn mun á þessari viku sem er góðs viti. Eins og ég var búin að segja þá er markmiðið að geta skokkað 10 km laugardaginn 20. desember og það skal takast hjá mér.

Mataræðið - það gengur svona allt í lagi, er ekkert að gera neitt öfgakennt, reyni bara að velja það sem er hollt og gott. Þegar ég fer að versla er meira en helmingurinn í körfunni hjá mér grænmeti og ávextir en fjölskyldan hefur tekið við sér í þeirri neyslu svo um munar.

Vigtin - hef ekki séð svoleiðis nýlega og ótrúlegt hvað hún skiptir mig litlu máli núna Glottandi

Stjörnuspáin er nú bara svona lala og getur átt við ansi marga og þá ekki bara í dag, það er nefnilega þannig að það er með ólíkindum hverju maður getur komið í verk undir álagi:
Vatnsberi: Verkefni sem þú þarf marga daga fyrir, hefur verið troðið á einn dag. Þú þarft að klára það strax og byrja á nýju verki. Það er ótrúlegt hverju þú kemur í verk undir álagi.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.