Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

yfirlýsing

29. september 2008 klukkan 09:45
Ekki það að stjörnuspár séu eitthvað sem ég láti stjórna lífi mínu en minnug stjörnuspár frá síðasta föstudegi og færslu minnar þá stendur þetta: "Vatnsberi: Aðstæður hafa misst kraftinn. Eitt sinn varstu með eld í maganum, en nú er það ryðgaður mótor sem vill ekki vinna. Meyja er fín til að peppa þig upp.
HMhmhm - verð að benda Hauki mínum á þetta (hann er meyja) - spjalla við hann í kvöldmatnum og bendi honum á stjörnuspána mína
".
Málið er að ég fór í naflaskoðum um helgina!!! Tók til í ymsum skúmaskotum og hugsaði út í eitt! Var í svartsýniskasti vegna ástandsins á krónunni, með kvíðahnút yfir því að vera að leika mér í skóla og ætla að minnka við mig vinnu vegna þess. Þannig að ég tók ákvörðun og skrifaði tveimur skólasystrum mínum í framhaldi af því og hér sjáið þið part úr því bréfi:

"Það er alltaf sama sagan með mig, alltaf skal ég vera að ætla mér of mikið!
Nú er það fyrirséð að það gengur ekki alveg upp eins og ég ætlaði þ.e. að minnka við mig vinnu og þ.a.l. er ekki að ganga fyrir mig að vera í 100% vinnu og 20 einingum í skóla. Ég verð bara að vera raunsæ, það er nú bara þannig. Þetta hefur því hvílt ansi þungt á mér síðustu daga og vikur og svo var það í gærkvöldi sem ég tók endanlega ákvörðun um að hægja á mér í náminu. Það er heldur ekkert "möst" fyrir mig að klára þetta nám á þessu kennsluári því ekki er ég að kenna og það hefur lítið að segja fyrir mig að vera eitthvað að klára þetta vinnunnar minnar vegna. -......- Ég veit þið trúið ekki hvað ég er búin að vera að hugsa þetta mikið og ég bara verð að segja ykkur frá þessu því mér finnst ég vera að svíkja ykkur!!! (innskot-við ætluðum að vinna verkefni saman í nóvember)Hins vegar býð ég mig fram ef ykkur vantar einstakling í viðtalsverkefnið: dæmi um fullorðinn námsmann sem hefur nóg á sinni könnu og ætlar sér alltaf um of!
Ég tók semsagt skrefið í morgun og sagði mig úr áfanganum á uglunni."

Þá vitið þið það kæru lesendur!
Takk fyrir kveðjuna. Já það er sko með ólíkindum hvað Alexander varð stór þegar Rakel Bára fæddist, fannst hann bara lítill þangað til;)
#1
29. september 2008 klukkan 17:13
 
Hanna Dóra
Hæ hæ Sigga Júlla mín ;-)
Ég þekki það ofurvel að hafa allt of mikið á minni könnu og hef líka með tímanum lært að það getur marg marg borgað sig að gera hlutina hægar og njóta þeirra meira :-) Meðal annars þess vegna hefur ritgerðin mín tekið þennan óra... óra...tíma.... hihi...! Það væri voða gaman að sjá þig hér í Dk í nóvember, svo endilega láttu heyra í þér þegar þú veist hvar á Jótlandi þú verður.
Kær kveðja
Hanna Dóra
#2
30. september 2008 klukkan 07:13
Heyrðu nú skil ég þetta með landnámshænueggin (gleymdi að kíkja)......

heyrðu og flott hjá þér þetta varðandi skólann - maður verður sjálfur að finna hvað maður er tilbúinn í - og það er ekkert auðvelt að vera í fullu starfi, eiga fjölskyldu og vera í námi líka.......go girl!!!!!
#3
03. október 2008 klukkan 00:24

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.