Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

læknis- og lærilærilæri

25. september 2008 klukkan 13:18
Þórður Logi fór í ómun á sjúkrahúsinu á Akranesi í morgun. Það gekk bara vel og útkoman góð. Málið er að við og leikskólakonurnar fórum að taka eftir að annað eistað stækkaði óeðlilega og höfðum við samband við lækni sem skoðaði drenginn mjög vel, síðan fylgdumst við með honum í nokkra daga og nú var semsagt komið að ómun. Niðurstaðan er að hann er ekki með kviðslit eða æxli, heldur er þetta vatnssöfnun sem þarna á sér stað. Á morgun verður svo tekin ákvörðum um framhaldið.
Á eftir fer ég með Stefán Snæ til læknis vegna vesenis með táneglur - frekar pirrandi fyrir hann.
Í gær og fyrradag var ég heima með Þórð Loga en hann var með hita.
Ég VONA að þetta sé ekki byrjunin á veikindatímabili!
7-9-13

Nú bara verð ég að komast í að vinna í náminu mínu og horfi ég með mikilli tilhlökkun til helgarinnar en það er vonandi ekkert planað og Haukur þarf vonandi ekki að vinna - ég get nefnilega voða lítið einbeitt mér að skrifum með Þórð Loga yfir mér. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér í september, þvælingur út og suður sem þýðir að maður hefur látið lestur skólabóka algjörlega sitja á hakanum. 
Það verður ekki slæmt að frá 1. október verð ég í 60% starfi sem þýðir að ég verð heima að vinna á mánu- og þriðjudögum, skólinn fær semsagt forgang þessa tvo daga í viku.

Til að toppa allt í dag þá á stjörnuspáin á mbl kollgátuna:
Vatnsberi: Til að verk takist sem best þarf að skila framúrskarandi vinnu. Þú þarft samt ekki að gera það allt. Hvettu aðra til að koma með lausnir.
Koma svo kæru lesendur.......!!

HALLA við ætlum svo út að skokka í dag!!!! Nú verðum við að standa okkur - bloggheimar fylgjast með Glottandi

Alltaf gaman og peppandi að lesa bloggið þitt. Góða skemmtun úti að skokka og ennþá betri skemmtun á Singalong Mamma Mía, vá væri alveg til í að vera á leiðinni þangað.

Bestu kveðjur Drekinn stóri
#1
26. september 2008 klukkan 11:47

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.