Dugnaður í þér að vera farin að prjóna, stelpa:)
Flott að fá æfingaplaninu svona published:) Það virkar mjög hvetjandi. Það skal hér með tekið fram að Sigga Júlla hefur verið að standa sig mun betur í því að mæta í spinning. Þurfum að fara að finna eitthvað svona "hvetjandi refsikerfi" fyrir morgunsvæfa... eitthvað eins og 250 kall í sekt fyrir hvert skipti sem þátttakandi segist ætla að koma en kemur ekki :)
Vonandi batnar Þórði fljótlega:) bið kærlega að heilsa honum:)
Ég er í plús......
23. september 2008 klukkan 15:17
Í dag er ég heima með veikan stubbaling. Hann er með hita, ekkert kvef eða neitt svoleiðis - bara hiti. Núna erum við að hlusta á "Galdrakarlinn í Oz" í fimmta sinn í dag - alltaf jafn skemmtilegt 
Stjörnuspá dagsins í boði mbl.is hljómar svona:
Vatnsberi: Þú ert upptekinn við að láta öðum líða vel yfir framlagi þeirra. Með vinalegum orðum og hughreystingu leggurðu inn á tilfinningareikninginn þeirra og kemst sjálfur í plús.
Það er ekkert annað!
Í kvöld er námsefniskynning í bekknum hans Stefáns og að henni lokinni ætla ég í saumó. Ég er byrjuð að prjóna af því tilefni eða lopahúfu úr hinu ýmsu afgöngum sem til eru inní skáp....það eru jú krepputímar og þá er nú betra að nýta það sem til er
Við Halla byrjuðum í gær að fara eftir prógramminu okkar, út að skokka og í morgun var farið í spinning. Allt samkvæmt áætlun. Varðandi spinnigtímana sem við ætlum að fara í á þriðjudögum þá eru þeir að miklu leyti bara spining í 20 mín en síðan erum við að lyfta í 25 mín - þannig að þetta er ekkert rosalegt. Elva takk fyrir ábendinguna. Mataræðið er líka á góðu róli.

Halla
#2
24. september 2008 klukkan 11:17
þú og þessi hreyfing.... *öfund*!!!!! Ég ´brá mér á fína krossþjálfan á sunnudaginn og ´fékk slíkt og þvílíkt í bakið að eg held að sú hreyfing sé ekki fyrir mig :(
en gott með þig kona, áfram Sigga Júlla!
til hamingju með mjólkurdaginn!