Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Myndablogg og enn eitt planið!!!!

21. september 2008 klukkan 17:13
Landsmótið tókst vel, ýmslegt bar fyrir augu og var ætlunin að sýna nokkrar myndir hér en mér tekst engan vegin að skella þeim hér inn þannig að best er að ég gefi ykkur slóðina á myndasíðuna mína en hún er hér.
Undanfarin tvö kvöld höfum við Haukur verið í matarboðum og er ætlunin að slá okkur niður á jörðina í kvöld en á diskinn fara fiskibollur!!!
Svo ætlum við Halla út að skokka á morgun en nýtt markmið hefur litið dagsins ljós hjá okkur en þann 20. desember n.k. ætlum við að skokka 10 km og er því búið að endurskoða æfingaáætlunina:

 Mánudagur Skokk 4,5 km 
 Þriðjudagur Spinning eða frí
 Miðvikudagur Spinning eða frí
 Fimmtudagur Skokk 4,5 km
 Föstudagur Frí
 Laugardagur Skokk 6-7 km
 Sunnudagur Frí

Eins og sjá má er aðalmarkmiðið að skokka þrisvar í viku og taka a.m.k. einn spinningtíma með æfingum.
Svo sjáum við bara til hvernig okkur gengur að fara eftir þessu en þetta er markmiðið fram að áramótum Glottandi

Ég hef ekki staðið mig nógu vel í að skrá niður hreyfingu á undirsíðuna hér til vinstri en ætla að taka mig á og halda vel utan um æfingarnar.
 
Elva
Heyrdu mér líst bara vel á thetta hjá thér. Eg er reyndar enginn stór addáandi spinning, thad slítur víst hnjánum.. en er nokkud viss um ad thad tharf meira en einu sinni í viku til ad vera neikvætt. Svo grænt ljós hédan ;)
Ertu líka ad lyfta? (hmm pínlegt en ég man ekki hvad "styrketræning" er á íslensku! er thad bara ad "lyfta".. finnst thad ekki mjög gott ord!)
#1
22. september 2008 klukkan 16:43
 
Rakel
Flottar myndir!!!
Það er eitthvað við svona myndir...skógarumgjörðin gerir þetta einfaldlega svo sjarmerandi og notalegt. Botnsdalurinn er líka fallegt svæði sem er þess virði að kanna betur. Held að allir hafi verið sammála um það.
bestu kveðjur
rakel

PS þið Halla eruð skuggalega duglegar :)
#2
22. september 2008 klukkan 20:34
 
Guðrún Pálma
O Sigga mín þú ert svo dugleg og takk fyrir síðast kv Guð´rún
#3
23. september 2008 klukkan 11:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.