Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

landsmót 2008

17. september 2008 klukkan 09:05
Djö...er ég dugleg, fór á fætur kl 6:15 og í spinning....íha!!!!

Seinnipartinn í dag förum við starfsfólkið á vinnustaðnum mínum í Hvalfjörðinn þar sem við ætlum að hitta félaga okkar hjá hinum skógræktarverkefnunum en þetta er árviss viðburður og skiptumst við á að hittast í öllum landshlutum. Við köllum þetta landsmót, keppnisgreinarnar eru af ýmsum toga t.d. höfum við keppt í drumbakasti, körfubolta, river-rafting og nú í ár verður farið í mjög krefjandi fjallgöngu í Hvalfirði eða upp að fossinum Glym (ef veðrið verður þokkalegt). Síðan förum við á nokkrar skógræktarjarðir, fundum um hin ýmsu mál og endum á því að grilla í hlöðunni á Bjarteyjarsandi annað kvöld. Þetta er mjög skemmtilegur viðburður og maður bíður alltaf spenntur eftir því að hitta félagana Brosandi það verður fín mæting í ár eða 15 sem ætla að mæta.

Á föstudagskvöldið er síðan matarboð hjá Svövu en þangað erum við allar FAK-írurnar ásamt mökum boðaðar.
Á laugardagskvöld er fundur í matarklúbbnum..... ótrúlegt hvað allt hittir á sama tíma Glottandi
 
Silla
Ohhhhh langar svooo að vera með í matarklúbbsfundi....:( það verður bara að vera næst!!
kv Silla.
#1
17. september 2008 klukkan 12:11
Ađalheiđur Sigurđardóttirbara allt vitlaust ađ gera ţú reddar ţví eins og alltaf :))))
#2
17. september 2008 klukkan 12:44
ég vænti þess að þú hafir unnið allar keppnisgreinar,,,,,,í ár og síðustu ár!!! ;)
#3
20. september 2008 klukkan 10:31

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.