Játning
16. september 2008 klukkan 08:24
...ég fór ekki út að skokka í morgun!!!! arg og garg, það er bara svo drulluleiðinlegt veður núna eða súld heitir það víst.
Vegna fjölda áskorana þá er ég búin að fá mér aðgang að fésbókinni en ég kann ekkert á þetta en mun fikta mig áfram næstu vikur.
Tímaleysi er að hrjá mig núna og það er engum um að kenna nema mér. Ég leyfi mér þann munað að leggjast upp í rúm með Þórði Loga þegar hann á að fara að sofa og oftar en ekki er ég sofnuð og svo sef ég kvöldið frá mé!!! Þannig að ég kem engu í verk, þvotturinn safnast upp og svo það sem skiptir eiginlega meiru máli ég er ekki að læra neitt á kvöldin
En ég held að það séu bjartari tímar framundan - ég veit af vandamálinu og þá er ekkert annað í stöðunni en að gera eitthvað í þessu
Vegna fjölda áskorana þá er ég búin að fá mér aðgang að fésbókinni en ég kann ekkert á þetta en mun fikta mig áfram næstu vikur.
Tímaleysi er að hrjá mig núna og það er engum um að kenna nema mér. Ég leyfi mér þann munað að leggjast upp í rúm með Þórði Loga þegar hann á að fara að sofa og oftar en ekki er ég sofnuð og svo sef ég kvöldið frá mé!!! Þannig að ég kem engu í verk, þvotturinn safnast upp og svo það sem skiptir eiginlega meiru máli ég er ekki að læra neitt á kvöldin
ćtla samt ađ adda ţér hahahaha