Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Er hægt að vera eitthvað hálfpartinn???

10. september 2008 klukkan 13:21
- Ja maður spyr sig. Ég þekki nefnilega mann sem er múslími og samkvæmt því þá ætti hann að fasta núna því það er ramadan (föstumánuður). Hann fastar í þeim skilningi að hann neitar sér um mat á daginn (frá sólarupprás til sólseturs) en hann fær sér te, kaffi eða vatn á daginn, ég hélt að það mætti ekki samkvæmt þessari trú. Það var aðeins verið að gera grín að viðkomandi í kaffinu áðan en eftir það hef ég verið að hugsa.... höfum við þessi kristnu einhvern rétt á því.....ég meina ekki er ég að iðka mína trú á fullu þó ég segist vera trúuð. Ég bið ekki bænir á hverjum degi, fer ekki í kirkju á sunnudögum, ég fer í kirkju ef um er að ræða jarðafarir, skírnir eða brúðkaup....ég meina það ég fer ekki einu sinni í jólamessu - hvað er ég að gera grín að þessum ágæta manni???
Þá er ég komin að þessari grundvallarspurningu: Er hægt að vera eitthvað hálfpartinn????

Að öðru, eftir vinnu í dag ætla ég að laga rammíslenska kjötsúpu, fara í skotapilsið mitt (skotum til heiðurs) en jafnframt að styðja okkar menn, ÁFRAM ÍSLAND!
 
Sú ráðagóða
jahá, hálfpartinn. Segjum að þú sért hálfpartinn en hvað er ég þá þrír fjórðu af því að ég fer í messu á jólunum?
kv. mamma
#1
10. september 2008 klukkan 16:29
Hálfpartinn.. já.. Er það ekki hugurinn sem gildir... Ekki fer ég í messu.. En ég vil samt halda í það að vera kristin... Dettur ekki annað í hug...
En varðandi Ramadan þá upplifði ég þann mánuð meðan ég bjó í Gambíu... Múslimarnir segja að þetta auki orku og hugsun... sem lýsti sér í því að öll starfsemi Rauða krossins lagðist nánast niður á þessu tímabili... engir fundir, allir sljóir af hungri og vatnsskorti... Á meðan menn vita líka ekki hvers vegna þeir eru að fasta... Og svo er sukkað eftir slólarlag... alla nóttina..... þá er tilgangurinn lítill og hefur ekkert með trú að gera... Ég aftur á móti naut þess í mínum skepnuskap að kaupa reglulega kalda kók og drekka fyrir framan samstarfsmenn mína... Ó.. sorry.. Ramadan.. I forgot"..... Bara gat ekki staðist þetta...
#2
10. september 2008 klukkan 20:35
Bið að heilsa þeim fastandi. Verst að fastan skuli vera svona snemma. Fínt í skammdeginu.
Kveðjur að norðan, Gyða
#3
11. september 2008 klukkan 12:10

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.