Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hreyfing veturinn 2008-2009

09. september 2008 klukkan 09:27
Í gær setti ég upp prógram sem ég ætla mér að fara eftir í vetur. Auðvitað verður þetta alltaf í endurskoðun en aðalmálið er að ég haldi mér í formi. Ég hef ekkert farið á vigt nýlega en geri nú alveg ráð fyrir að í sumar hafi bjórdrykkja, sykurneysla og grillmatarát haft einhver áhrif og finnst mér ekkert ólíklegt að ca 3-5 kg. verði að fjúka en ég læt ykkur vita þegar ég verð búin að hitta vinkonu mín þ.e. vigtina og veit hvaða verkefni bíður mín. Ég er í það minnsta búin að heita mér því að ná vigtinni niður fyrir jól.
Hreyfingarprógrammið er þannig:

Mánudagur Skokk 
Þriðjudagur Spinning + æfingar með lóðum í Borgarnesi
Miðvikudagur Frí eða göngutúr
Fimmtudagur Spinning + æfingar með lóðum í Borgarnesi
Föstudagur Skokk
Laugardagur Frí eða göngutúr
Sunnudagur Frí eða göngutúr

Þegar ég er að fara í spinning eða út að skokka er ég að far á fætur kl 6:15 en þetta er einfaldlega sá tími sem hentar mér langbest, ef ég ætla út seinnipartinn þá finnst mér ég vera að taka tímann frá einhverju öðru  (sem ég er auðvitað að gera). Þannig að morgnarnir eru minn hreyfitími. Hreyfing 4 sinnum í viku er líka alveg ljómandi, þegar veturinn skellur á með öllum sínum þunga mun ég líklega eitthvað breyta prógramminu og fara þá meira inn í líkamsræktaraðstöðuna í Ásgarði (LbhÍ) en þar eru hlaupabretti og lóð og tæki sem ég gæti þá nýtt mér en við sjáum til hvernig viðrar..... eiginlega er það kannski frekar myrkrið sem verður til þess að maður fer inn, tja sjáum til Glottandi
 
Berglind
Sæl
Já þetta lítur vel út hjá þér, mitt plan er svipað nema ég fer í blak á þriðjudögum og fimmtudögum. og svo er ég ekki viss um að ég hafi mig út að skokka svona snemma maður lifandi!!!
#1
10. september 2008 klukkan 08:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.