Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Óvissuferđin og helgin

08. september 2008 klukkan 11:53
Fimmtudagurinn 4. september
Stefán Snær stóð fyrir heljarinnar morgunverði: egg, bacon, brauð, trópí og fl.
Þegar drengirnir voru farnir í skóla og leikskóla, tók ég okkur til og við fórum af stað í óvissuferðina ógurlegu. Fyrsta stopp var í Borgarnesi þar sem tekið var bensín á bílinn, svo var komið við í Geirabakaríi og við fengum okkur tertu og kakó.
Þá koma að vísbendingunum og fyrsta hljómaði svona "Stingum höfðinu í sandinn ......kennitala 932"  og þið gátuð þetta öll þannig að við keyrðum sem leið lá upp í Borgarfjörð, Hvítársíðuna og fram hjá Fljótstungu og enduðum uppá topp á Strút sem er fjall fyrir ofan Kalmannstungu. Þá kom önnur vísbending en á henni var enginn texti heldur kort og aukavísbending fylgdi einnig og í henni stóð" jötunn einn er Surtur hét......" og við enduðum í Surtshelli, skoðuðum þar ýmsa króka og kima en ég held við höfum verið þar í um þrjá klukkutíma. Bara gaman. Á þessum tímapunkti vorum vi'ð bara ansi þreytt og fékk Haukur þá þriðju og síðustu vísbendinguna sem leiddi hann að Hótel Hamri, þar beið okkar herbergi með aðgengi að heitum potti og frábær kvöldmatur. Haukur var mjög ánægður með þennan dag og komum við heim á föstudaginn bara rétt til að sækja drengina og taka okkur til fyrir helgina en við vorum með íbúð í bænum.
Helgin 5. -7. september.
Ég var í skólanum á laugardag. Haukur og strákarnir rúntuðu á milli hljóðfærabúða, fóru í Kolaportið og fleira. Við horfðum á landsleikinn við Noreg á Friday´s í Smáralindinni og fengum gesti á laugardagskvöldið (Silla og Oddur, takk fyrir komuna). Á sunnudaginn hittum við Rakel og Bolla í IKEA (frumlegur staður!) versluðum lítillega og fórum þá heim.
Kvefpest gerði vart við sig þessa daga og var ég fárveik á föstudagskvöldið Haukur hefur líka verið frakar slappur en þetta er allt að koma Glottandi 

Dagurinn í dag:
Vinna og alvara lífsins tekin við.

Framtíðin:
Ég fer í 60% starf frá og með 1. október.

Hreyfing: Verð að koma mér upp skipulagi/plani fyrir veturinn.

Að lokum þakka ég fyrir öll komment Brosandi
Sæl Sigríður Júlía, áður en þú brást þér til heitari stranda þá sagðist þú hafa séð flekki af dauðu bláberjalyngi. Ég fékk einmitt mynd og fyrirspurn um það í sumar en fannst það svo jafndautt á myndinni að mínir skjólstæðingar væru tæplega að verki. Þeir taka þetta í fleiri áföngum. Ég var að velta því fyrir mér hvort þetta væri einhver lirfa eða álíka kvikindi sem æti ræturnar af eða skæri ofanjarðarhlutann af rótinni. Skoðaðir þú einhver lyng sem svona var komið fyrir í sumar?

Svo segja þeir að ramadam sé hafið.
Kveðjur til þín og félaga, Gyða
#1
08. september 2008 klukkan 21:54

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.