Komin heim
28. ágúst 2008 klukkan 10:01
Ég hafði vitlaust fyrir mér í síðustu færslu, hitinn var frekar upp undir 40 stig - sem er nú eiginlega einum of..... Oftast var hann samt í 33-35 og á kvöldin fór hann alveg niður í 26!! Fórum í vatnsrennibrautagarð, röltuðum eitt síðdegi/kvöld um höfnina í Chania, fórum í siglingu á bát með glerbotni (til að sjá fiskana), syntum í sjónum og lágum á sundlaugarbakkanum, röltum um og borðuðum aldeilis fínan mat. Hótelið var vel staðsett, mitt á milli Platanias og Chania í þorpi sem heitir K. Stalos, hótelið var við ströndina ss garðurinn með sundlauginni sneri niður að sjó og þegar maður var komin út úr honum var maður staddur á ströndinni
Á þessu íbúðahótelli voru ekki nema 11 íbúðir þannig að þetta var ansi heimilislegt. Búðir til að versla það nauðsynlegasta í 20 m fjarlægð og bakarí í 100 m fjarlægð, næsti strandbar var tja í ca 100-150 m fjarlægð - maður þurfti semsagt ekki að fara langt til að komast í það sem þurfti.
Frábært frí að baki en nú tekur alvaran við, vinnan og skólinn
Frábært frí að baki en nú tekur alvaran við, vinnan og skólinn
http://www.blog.central.is/arnigisli
Árni Gísli litli bróðir
Velkomin heim elsku stóra systir!! ;)
#1
28. ágúst 2008 klukkan 15:57
Steinunn Hj
Velkomin heim
Þetta hefur verið aldeilis góð vika ekki slæmt svona í byrjun hausts!!¨
Heyri í þér fljótlega he he..
Kveðja að norðan Steinunn.
Þetta hefur verið aldeilis góð vika ekki slæmt svona í byrjun hausts!!¨
Heyri í þér fljótlega he he..
Kveðja að norðan Steinunn.
#2
28. ágúst 2008 klukkan 17:52
Rakel
Velkominn heim!!
Nú er bara að drífa í að skipuleggja landsmótið.
Hlakka til að sjá þig þá :-)
kv
Rakel
Nú er bara að drífa í að skipuleggja landsmótið.
Hlakka til að sjá þig þá :-)
kv
Rakel
#3
28. ágúst 2008 klukkan 19:41
Margrét
Velkomin heim! Gott að vita af þér hérna í nágrenninu...sjáumst svo í saumó á þriðjudaginn! :)
Kv. Margrét
Kv. Margrét
#4
28. ágúst 2008 klukkan 21:36