Sæl
ég er alveg sammála þessu með hausthreingerninguna, einhvernvegin gerir maður bara akkúrat það sem þarf yfir sumarið og nýtir tímann frekar úti í góða veðrinu og á einhverjum þvælingi svo það er alveg nauðsynlegt að taka allt í gegn þegar allt er að falla í fastar skorður aftur.
Góða skemmtun á Krít
Haustið er að koma
18. ágúst 2008 klukkan 11:27
... svo mikið er víst. Gróðurinn er farinn að sölna og sést það ágætlega á birki og úthagagróðri. Reyndar er það mjög áberandi þegar maður er kominn yfir Bröttubrekku að óáran er í aðalbláberja og bláberjalyngi, þetta er mjög áberandi í Dölum og allt vestur á firði. Þrátt fyrir þetta hef ég aldrei séð eins mikið af berjum eins og nú í sumar. Í gönguferðum fyrir vestan um helgina stoppaði maður ótt og títt til að stinga upp í sig berjum.
Nú er kertaljósatíminn framundan sem ég get eiginlega ekki byrjað að njóta almennilega fyrr en búið er að taka húsið í gegn....jamm ég veit...ég er rugluð! Þannig að framundan er hausthreingerning, ég þarf svo að mæta í fyrstu staðlotu í Kennó 29. ágúst EN fyrst förum við fjölskyldan í viku til Krítar

Berglind
#2
18. ágúst 2008 klukkan 14:44
Góða ferð til Krítar og njótið ykkar vel í sólinni!
Kv. Margrét