Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

....á ferđ og flugi

06. ágúst 2008 klukkan 08:36

Ég hef verið á ferð og flugi í vinnunni, flækist nú á milli bæja og kortlegg væntanleg skógræktarsvæði. Ekki amalegt í því veðri sem verið hefur síðustu daga og vikur Glottandi
Við vorum heima um helgina. Mamma og pabbi komu á laugardag og gistu eina nótt. Síðan komu fleiri gestir á sunnudag í tilefni þriggja ára afmælis Þórðar Loga.
Við Haukur áttum tíu ára trúlofunar og sex ára brúðkaupsafmæli á mánudag og til að halda upp á það fórum við á jeppanum (campernum) þeirra mömmu og pabba upp í Langavatnsdal með nesti og hituðum okkur kaffi og kakó. Síðan var aðeins kíkt á berjasprettuna sem er GÓÐ. Inga og Keli voru samferða í þessari ferð og auðvitað Stefán Snær og Þórður Logi. Þegar heim var komið var grillað hjá Ingu og Kela og fyrsta "tékk" á kartöfluuppskerunni ásamt brokkoli úr garðinum okkar var smakkað, allt lofar þetta góðu - og desertinn kom Tedda með: aðalbláber með rjóma mmmmmmm.

Ása Dóra Finnbogadóttirmmmmm girnó.........til hamingju međ strákinn - auđvitađ gleymdi ég ađ hringja - var algjörlega útúr heiminum í afslappelsi fyrir norđan :(

#1
06. ágúst 2008 klukkan 19:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.