Komin úr fríi
Við hjónin erum sammála um að ferðin á Hornstrandir var besta frí sem við höfum nokkurn tíman farið í, held það sé bara ekki hægt að toppa þetta.
Svo til að taka af allan vafa þá vorum við ekki hópurinn sem "sá" ísbjörn!!
Vikuna áður en við fórum brunuðum við norður og vorum í sumarbústað í Eyjafirði í 2 daga fórum svo í Skagafjörðinn og dvöldum þar í þrjá daga. Þaðan fórum við heim á fimmtudegi og brunuðum síðan vestur á Ísafjörð á föstudegi (11. júlí)
12. júlí kl. 11:00 var siglt frá Ramónubryggjunni á Ísafirði að Hornbjargsvita (planið var að leggja af stað kl 9 en bátnum seinkaði).
13. júlí dvalið á Hornbjargsvita. Gengum á Axarfjall og upp í Almenningsskarð, þoka á bjarginu og því ekki til neins að ganga þangað14. júlí gengum til Hornvíkur í þoku og súld....rigning og rok um kvöldið.
15. júlí gengum frá Hornvík uppúr hádegi þegar veðrið skánaði og yfir að Búðum í Hlöðuvík. Eftir hádegi þennan dag var brostin á blíða sem hélst það sem eftir var ferðarinnar.
16. júlí gengum frá Hlöðuvík í Fljótavík. Þetta var langur dagur og erfiðasti hlutinn var í Fljótavíkinni þar sem við gengum með vatninu endilöngu á mjög blautu landi.
17. júlí gengum frá Fljótavík í Stakkadal í Aðalvík
18. júlí gengum frá Stakkadal að Hesteyri, farangurinn fór í bát í Aðalvík. Ég get mælt með kaffi og bakkelsi í læknishúsinu á Hesteyri....aldrei að vita nema maður sé heppin og fái tónleika í kaupbæti. Hrólfur Vagnsson þandi nikkuna og sló í gegn! Ramóna sótti okkur á Hesteyri um kvöldið og við sigldum til Grunnavíkur.
19. júlí dvalið í Grunnavík, fórum í stutta þægilega gönguferð og sátum í heitum potti!!! Grillveisla og gaman um kvöldið.
20. júlí siglt frá Grunnavík til Ísafjarðar kl. 11.
Við Haukur sváfum í tjaldi allar næturnar nema í Hornbjargsvita, þar var nægt gistipláss í húsi.
Þegar við vorum komin í land á Ísafirði þann 20. fórum við í sund og héldum svo sem leið lá í Skagafjörðinn að sækja Þórð Loga og hitta Stefán Snæ. Við vorum svo komin heim á Hvanneyri að kvöldi 21. og höfum síðan þá verið í rólegheitum heima, farið í sund, grillað og svoleiðis.
Í dag byrjaði ég svo að vinna og er farin að telja niður.... því næsta mál á dagskrá er seinnihluti sumarfrísins sem verður eytt á Krít.
Bestu kveðjur að norðan