Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hreyfingaruppgjör

01. júlí 2008 klukkan 12:14
Vá hvað tíminn líður. Það er kominn 1. júlí!!
Hreyfingaruppgjör mitt fyrir júní hljómar svona: 17 sinnum stunduð markviss hreyfing í júní, ég er sátt við það þar sem markmiðið var að fara minnst 3svar sinnum í viku að hreyfa sig. Ég tel ekki með hjóla eða gönguferðir í og úr vinnu í þessu uppgjöri mínu.
Nú er aðeins einn spinningtími eftir fyrir sumarfrí, síðan stefnum við Haukur á eina æfingagöngu á Tröllaskaga á sunnudag/mánudag með allt á bakinu og Hornstandaferðin er handan við hornið. Þannig að júlí lofar góðu hreyfingarlega séð.

Við erum þessa dagana að græja okkur fyrir ferðina og farin að leggja línurnar varðandi mataræði þessa daga þannig að það er heilmikið pæl í gangi Glottandi Síðan blaðar maður í bókum og reynir að kynna sér staðhætti, sögusagnir og annað sem gæti verið gaman að segja ferðafélögunum frá á göngunni eða á kvöldin eða bara til að hugsa um þegar gengið er á Hornströndum. Kunnið þið einhverjar sögur?

Jæja best að halda áfram að vinna Hlæjandi
Hæhæ... nóg að gera hjá "þinnars";) VIð erum líka farin að þrá að komast í sumarfrí, teljum niður dagana... ekki nema 8 vinnudagar eftir og þá erum við komin í langþráð frí. Við stefnum enn sem komið er á suðurferð ca. mánudaginn 21. júlí og ætlum að vera eitthvað fram í vikuna í borginni. Reikna með að við förum bara þessa venjulegu leið suður og norður en það væri gaman að kíkja við á Hvanneyri í annað hvort skiptið. Verðið þið heima þessa daga?
#1
01. júlí 2008 klukkan 17:19

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.