Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

síđasta vinnuvika fyrir frí

30. júní 2008 klukkan 08:43
Rólegheitahelgi að baki..... eða þó? Fórum í afmæli á föstudagskvöldið, matarboð á laugardagskvöldið og FAK-kvennabrunch í gær. Þess á milli var slappað af. Þá er það bara síðasta vikan fyrir sumarfrí og einnig síðasta vika morgunspinningtíma en Erla spinningleiðbeinandi verður í fríi fram í ágúst - eftir þessa viku. Við ætlum að slútta þessu spinningtímabili með því að fara saman út að borða á fimmtudagskvöldið.

Við öll fjölskyldan erum farin að bíða eftir að komast í frí og fara eitthvað, Þórður Logi talar ekki um annað þessa dagana en að fara í sveitina til ömmu og afa að hitta hvolpana á meðan við foreldrarnir erum á síðustu dropunum í vinnunni.
 
Silla
svo líka.. munið að taka frá verslunarmannahelgina :) BARA GAMAN!!
kv silla.
#1
30. júní 2008 klukkan 14:12
 
Heiđa kennslukona og hundasnyrtir
Hæ hæ.
Rétt missti af þér á Hvanneyri um helgina. Annars var leiðindarok og kannski ekkert gaman að rölta á Hestfjall í því. Gerum það bara næst :o)
Við hittumst gamli bekkurinn minn hjá Sirrý, grilluðum og drukkum soltinn öl og kíktum svo á barinn! Mikið gaman og virkilega skemmtilegt að kíkja aðeins á Hvanneyri.
Svo held ég að ég hafi endanlega dottið á hausinn því ég var að ráða mig í 80% kennslu næsta vetur - hehe.
Kveðja, Heiðdís.
#2
30. júní 2008 klukkan 21:44

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.