Get komið með komment á kommentið...úðarar voru uppseldir í Húsasmiðjunni og KB byggingavörum í gær, en hægt að kaupa upprúllaða garðslöngu á "hjóli" með svona úðabyssu. Gaurinn í Húsasmiðjunni ætlaði nú samt að panta úðara fyrir mig sem hefði átt að koma í morgun, en ég fór hins vegar ekki að ná í hann þá, þannig að ef hann kom í morgun þá ætti hann að vera þar enn...fyrstur kemur fyrstur fær! ;)
Var nú að vona að þrumuveðrið kæmi með eitthvert úrhelli sem gæti jafnvel dugað, en það gerði það víst ekki...
Kv. Margrét
Góðviðri dag eftir dag.....
24. júní 2008 klukkan 11:10
...og virðist ekkert lát á. Það lýtur út fyrir að heyskapur klárist á Hvanneyri í dag þ.e. það sem tekið er í þessari lotu, engjarnar verða teknar síðar í sumar og síðan er seinni sláttur eftir.
Annars er maður farin að liggja á bæn og óska eftir rigningu, það er allt að skrælna. Á gönguferðum mínum um helgina og einnig sem tengist vinnunni minni hef ég orðið vör við mjög mikið af sætukobbum og bendir allt til góðrar bláberjasprettu, allavega hér á Vesturlandi og eins á Suðurlandinu enda var mikill snjór í vetur sem hlýfði lynginu og vorið var einstakt, ekkert maíhret.

Margrét
#2
24. júní 2008 klukkan 20:17
Og af bláberja sprettu þá hef ég einmitt fengið þær fregnir að norðan að bláberjaspretta líti með eindæmum vel út þetta sumarið.
kveðja af loftinu í gamla skóla