Gsm-síminn bilaður. Uppþvottavélin biluð. Hvað bilar næst?.... ég? Say no more......
Sigríður Júlía
Margrét
Tja...maður getur útilokað ísskápinn þar sem hann er tiltölulega nýr...ef hins vegar þvottavélin bilar næst á eftir uppþvottavélinni þá held ég að það sé óhjákvæmilegt að þú bilist næst á eftir því...ég myndi að minnsta kosti bilast ef bæði þvottavél og uppþvottavél myndu detta út! ;)
Hins vegar þá er gamli gemsinn minn með einhver elliglöp, þannig að þetta er kannski smitandi...(skjárinn á nýja gemsanum gaf upp öndina eftir að gemsinn ákvað að stunda teygjustökk af öxlinni á mér og niður á gangstétt...gleymdi bara teygjunni, þannig að gamli gemsinn var tekinn í notkun aftur). Sá gamli hefur hins vegar tekið upp á því að sýna mér skilaboð sem ég sendi árið 2006, þótt ég sé löngu búin að eyða þeim út úr símanum, og tók líka upp á því að sýna "minni næstum fullt" tilkynningu þótt ég væri nýbúin að eyða öllu út úr "innhólfi" og "sendum skjölum"...skil þetta ekki...
En, sorrý...ætlaði ekki að fara að blogga á þinni síðu...skal reyna að hemja mig næst! ;)
Kv. Margrét
#1
20. júní 2008 klukkan 11:07
Auglýsing
Teljari
Heimsóknir í dag: ...
Þennan mánuð: ...
Frá upphafi: ...
Athugið
Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.