Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

1,7 kg. í plús

18. júní 2008 klukkan 09:46
Saumaklúbbsskrallið heppnaðist gríðarlega vel, vantaði reyndar fjórar dömur í hópinn en það varð bara að hafa það og við sem mættum skemmtum okkur vel. Vorum lengi í pottinum, borðuðum mikinn og góðan mat. Grillað einiberjakryddað lambalæri með allskonar meðlæti sem allt passaði svo vel saman og desertinn...mmmmmm fullt af ávöxtum í eldföstu móti, nokkrar kókosbolluklessur ofan á og hitað á grilli ...mmmmm!
Í gær var síðan þjóðhátíðardagurinn okkar. Farið var í sund, skrúðgöngu og grillað úti í skjólbeltum ásamt hópi af íbúum Hvanneyrar og nágrennis. Seinnipartinn kíktu svo vinir okkar í heimsókn, þannig að deginum var vel varið.
Í gær var líka ár síðan ég útskrifaði mig úr danska, þann 17. júní 2007 var ég 67,2 kg. og í gær 17. júní 2008 var ég 68,9 kg. Semsagt 1,7 kg hefur bæst á mig síðan fyrir ári síðan en allt í lagi ég er sátt.
Ég veit ég hef tök á þessu svo þetta er allt í góðu.

Ég er ekki þessi manneskja sem man afmælisdaga vel, það er hins vegar þannig að ef fleiri en einn eiga sama daginn þá eru meiri líkur á að ég muni það!!! Semsagt í dag eiga: Ása Dóra, Sigurjón og Hrafnhildur afmæli. Til hamingju!
 
Margrét
Þú átt sko hrós skilið, frú mín góð, fyrir að standa þig svona vel eftir útskrift. 1,7 kg eru nú ekki neitt neitt, tala nú ekki um eftir svona hrikalega góðan mat kvöldinu áður! Þú ert hetja og stendur þig rosalega vel!

Og já, takk fyrir síðast! Þetta var hrikalega gaman, góður matur, meðlæti og eftirréttur, að ógleymdu góðu spjalli og frábærri pottaferð!

Kv. Margrét
#1
18. júní 2008 klukkan 16:54
Já, maður fær heldur betur vatn í munninn við að lesa svona matarblogg hjá þér!! ;) Hvað varstu að hugsa um versló?? Þú sagðist vera með hugmynd......:) Bið að heilsa í kotið!! ;)
#2
19. júní 2008 klukkan 09:04
Þetta er vægast sagt glæsilegur árangur hjá þér, +1,7 kg... það er ekki neitt.. .gæti þess vegna verið smá vökvi og föt. Þú ert greinilega búin að umturna lífsstílnum og kannt að halda honum :) Æðislegt að heyra svona :)
#3
19. júní 2008 klukkan 12:02
Frábært hjá þér snúllan mín - þú ert greinilega búin að umbylta lífsstílnum svona rækilega að það er ekki aftur snúið - þú ert svo hrikalega dugleg stelpa!!

kv. Ása Dóra
#4
19. júní 2008 klukkan 13:15

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.