Hól dagsins.....
16. júní 2008 klukkan 15:57
Má til með að hæla Kennaraháskólanum. Var að taka eftir því að 12. júní sl voru drög að stundatöflu fyrir haustönn komin inn á vefinn.... þetta kallar maður framför en í þessu námi sem ég er í er fólk í vinnu og þarf að geta skipulagt sig með góðum fyrirvara. Veit að þeir voru gagnrýndir fyrir þetta í kennslumati sem var fólk átti að skila inn fyrir 1. maí og þeir hafa heldur betur unnið vinnuna sína og virðast taka mark á mati nemenda. Fyrir utan það að núna veit ég hvaða kúrsar verða kenndir og báðir kúrsarnir sem ég valdi verða kenndir. Ég verð semsagt í skólanum (skv. þessum drögum): 29. og 30. ágúst, 6. september, 13. og 14. október, 7. 20. 21. nóvember. Jamm þeir eiga hrós skilið
Gleðilega þjóðhátíð og hafið það gott..
Silla.