Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

12. júní

12. júní 2008 klukkan 09:14

Þennan dag árið 1988 rölti ég í sól og blíðu inn í Hálskirkju í Fnjóskadal. Með í för var ein vinkona og skólasystir, ættingjar og vinir auk prestsins sr. Péturs Þórarinssonar. Það eru semsagt 20 ár síðan ég fermdist. Eitt af því sem ég man best frá þessum degi  er veðrið, það var svo gott veður og veislan var að hálfu leiti úti, allir hlaupandi inn og út. Ráðhildur móðursystir mín og hennar fjölskylda höfðu komið nokkrum dögum fyrr til að aðstoða við undirbúninginn og voru svo í nokkra daga á eftir því þetta vor fluttum við úr Fnjóskadalnum í Skagafjörð þar sem foreldrar mínir höfðu fest kaup á jörð.
Þetta var líka vorið sem ég fór að vinna í fyrsta skiptið annarsstaðar en heima hjá mér. Þetta var vorið sem framtíðarstarfið var sigtað út því ég fór að vinna hjá Skógrækt ríkisins í Vaglaskógi. Ég vann í ca mánuð frá því eftir skóla í maí og þar til við fluttum.
Ótrúlegt hvað tíminn líður Hlæjandi

 
Tedda
Já heldur betur hvað tíminn líður ofsa hratt...... það voru sko 32 ár síðan ég fermdist 7.júní, trúi því nú bara varla, varð að marg reikna það.... hehehe
#1
13. júní 2008 klukkan 08:59
Hæhæ Bláklukka! ;)

Takk fyrir kommentið á minni síðu!
Þetta er lítill heimur, sé að þú átt rætur að rekja í Fnjóskadal... ég bý í S-þingeyjars. einmitt. ;)
Gaman af því! Já tíminn flýgur það er alveg ljóst, alltaf hratt stundum allavega!.
En gangi þér vel í einu og öllu!.

Kveðja

Hjartadrottningin! ;)
#2
13. júní 2008 klukkan 13:08
Vááááá!!! 20 ár... það er nú dágóður tími... ég átti einmitt 20 ára fermingarafmæli í fyrra og fannst það nú frekar ótrúlegt. Ég man nú aðeins eftir fermingarveislunni þinni, fyndið að við séum búnar að þekkjast svona mörg ár Sigga mín... og gaman að öllu sem okkur tókst að gera saman í gamla daga, böllin góðu í Bárðardalnum, skógræktarvinnan og fleira;) Vonandi tekst okkur að hittast í sumar, stefnum líklega á suðurferð vikuna eftir afmælið mitt... spurning hvort u manst hvenær það er hehehehe:D Aldrei að vita nema við komum við á Hvanneyrinni í annarri hvorri leiðinni. Svo eruð þið alltaf velkomin til okkar hér á Dalvík... Fiskidagurinn mikli skemmtilegt framtak Dalvíkinga, verður að þessu sinni 9. ágúst.
Og b.t.w. cool Bikini sem u varst að kaupa, vildi að ég gæti verið í bikini:S
#3
18. júní 2008 klukkan 22:14

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.