spjall dagsins
05. júní 2008 klukkan 09:13
Ég sé það á teljaranum mínum (sem telur heimsóknirnar á síðuna) að eitthvað er fólk farið að draga úr heimsóknum, greinilegt að fólk er byrjað að taka sumarfrí. Það er hins vegar rétt rúmar 4 vikur í að ég byrja að taka hluta af mínu en þangað til verður alveg nóg að gera í vinnunni.
Við vorum þrjár frá Hvanneyri sem mættum í spinning í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi í morgun, aldeilis fínt að vera ekki alltaf ein á ferð
Mataræðið í góðum lagi en ég eins og ég sagði um daginn þá er ég að reyna að fara eftir "danska" að mestu leyti því þannig líður mér best.
Næstu dagar eru annasamir, vinna auðvitað, uppákoma hjá foreldrafélagi leikskólans seinnipartinn í dag, kynningar og útskrift hjá Grænni skógum I á Vesturlandi á laugardag og ferming á sunnudag og í næstu viku verð ég á ferð og flugi.
Annað árið í röð þá kemst ég ekki í KVENNAHLAUPIÐ bömmer
Held ég fái mér samt bol til að styrkja gott málefni