Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ný vinnuvika og....

02. júní 2008 klukkan 09:40
....það er kominn JÚNÍ!!!!! Tíminn er ekkert smá fljótur að líða.

Ég fór í spinning í morgun, það eiga að vera tímar þrjá morgna í viku, út júní sem er alveg frábært. Tedda kom með mér í morgun og vonandi verður hún með þennan mánuð. Það er nefnilega töluvert skemmtilegra að vera ekki alltaf ein að fara héðan.
Eftir þessa endalausu kvefpest sem hefur verið að herja á mig hefur mataræðið verið í rugli. Núna er ég kominn 100% í danska til að ná mér niður aðeins. Ekki það að ég hafi eitthvað fitnað heldur er það meira þannig að mér líður bara svo miklu betur ef ég er heilbrigðari í mataræðinu.

Svo eru það stóru fréttirnar; Þórður Logi er hættur með bleyju en þó ekki á nóttunni Glottandi
 
Margrét
Dugnaðarforkur er hann sonur þinn! :) Enda á hann svo sem ekki langt að sækja dugnaðinn og drifkraftinn, drengurinn. ;)

Gaurinn á þessu heimili sýnir þessu minna en engann áhuga, þannig að ég ætla ekkert að vera að pressa á hann...

En, já...tíminn líður ekkert smá hratt, það verða komin jól áður en maður veit af! Innan við hálft ár í fyrsta sunnudag í aðventu...pældu í því! ;)

Kv. Margrét
#1
02. júní 2008 klukkan 16:48

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.