Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Stór dagur á Hvanneyri í dag

30. maí 2008 klukkan 13:18
1.
Í dag klukkan 14 verða háskóla- og búfræðinemendur brautskráðir í Reykholtskirkju.

2.
Í dag var stofnað Votlendissetur LbhÍ. Markmið þess er m.a. að rannsaka eðli og lífríki votlendis, rannsaka nýmyndun og endurheimt votlendis auk þess að vernda hin einstöku votlendissvæði á Hvanneyri. Votlendi gegnir margháttuðu hlutverki í náttúru Íslands. Á Hvanneyri er fjölbreytt votlendi, kjörið til fræðslu og rannsókna sem hafa alþjóðlegt gildi.
Votlendissetrinu ætlað að efla menntun í votlendisfræðum og gera votlendissvæðin aðgengileg til útivistar. Þá er setrinu ætlað að taka þátt í alþjóðlegu rannsóknarstarfi og samstarfi á sviði votlendisfræða. Aðalráðgjafi LbhÍ um stofnun þessa seturs er hinn heimsfrægi votlendisfræðingur og prófessor Bill Mitch við ríkisháskólann í Ohio í Bandaríkjunum. LbhÍ er í miklu samstarfi við þennan háskóla og tekur samstarfið m.a. til votlendisfræða.
Landbúnaðarháskólinn mun (í dag) afhenda umhverfisráðuneytinu formlega umsókn um viðurkenningu á votlendissvæðunum á Hvanneyri sem Ramsar svæði, en slíka viðurkenningu fá þau votlendissvæði sem hafa alþjóðlegt mikilvægi. Á Íslandi eru önnur Ramsar svæði sem eru Þjórsárver, Mývatn og Grunnifjörður í Hvalfjarðarsveit. Það er einstakt á heimsvísu að háskólasvæði sé jafnframt náttúruverndarsvæði með alþjóðlegt mikilvægi. Stofnun Votlendissetursins er því merkt skref í náttúruvernd á Íslandi.

3.
Í dag er síðasti skóladagur skólaársins 2007-2008 í grunnskóla Borgarfjarðar.

Þetta er semsagt helst í fréttum frá Hvanneyri í dag Glottandi
Köttur úti í mýri setti upp á sér stýri úti er ævintýri, eða rétt að byrja.
Til hamingju með mýrina. Gyða.
#1
31. maí 2008 klukkan 11:50

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.