fórnir....eru þær til?
28. maí 2008 klukkan 14:14
Ferðin með 6. bekk gekk vel. Við vorum nokkrir foreldrar sem fórum með og einhverjir skiptu tímanum með sér þannig að alltaf voru að meðaltali fjórir fullorðnir á staðnum.... eeeeeee er það fórn? Krakkarnir léku sér í skóginum, fóru í vatnsslag, í pottinn og léku sér út í eitt. Það var grillað og haft gaman. Ég var komin heim um hádegið í gær og var þreytt eftir nóttina en ég hafði varan á mér og svaf mjög laust (þegar ég svaf!!)..... eeee er það fórn?
Stjörnuspá dagsins af mbl.is er alveg merkileg..... Vatnsberi: Það virðist enginn taka eftir fórnunum sem þú færir. Það er aldrei eyðsla á orku að vera fórnfús. En ef þú dregur þig í hlé einn dag, ertu betur metinn daginn eftir.
Jæja, ég lít reyndar ekki á lífið sem fórn.....
Kvefið og slappleikinn sem hafði verið á leiðinni að koma í næstum því mánuð hætti við að hætta við að angra mig og ég er frekar fúl, þoli ekki að vera svona hálfslöpp! Ekki nægilega til að liggja fyrir lasin en heldur ekki nógu hress til að vera í mínu besta formi.