Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

brunamál, útskrift, leikhús og leikur!

26. maí 2008 klukkan 10:03

Ég fór á afar áhugavert málþing á föstudag um brunavarnir á skógræktarsvæðum - ýmislegt kom þar fram og vakti mann til umhugsunar. Ánægjulegt var að heyra að eitt stærsta sumarhúsasvæði landsins eða í Skorradal á að fara að gera úttekt og viðbragðsáætlun ef eldur kemur upp. Það má segja að viðlíka svæði eru tifandi tímasprengjur, það er ekki spurning hvort heldur hvenær eitthvað gerist og þá er eins gott að það liggi fyrir hvernig á að koma öllum frá svæðinu, hvaða vegir/slóðar beri þunga slökkviliðsbíla, hvar er aðgangur að vatni, hvar eru önnur verkfæri staðsett sem komið gætu að notum (klöppur og skóflur). Fær maður tjónið bætt ef landið manns og allir sumarbústaðirnir brenna? ....og svona mætti lengi telja.

Haukur útskrifaðist á laugardaginn, héldum upp á það með að fara á kaffihús með drengina okkar og um kvöldið grilluðum við og horfðum á júróvísjón. Haukur fékk alveg æðislega útskriftargjöf frá góðum vinum, miða fyrir tvo á tónleika með Eric Clapton!!!!! TAKK KÆRU VINIR Hlæjandi

Við komumst ekki í gönguferðina eins og við ætluðum í gær en við fórum hins vegar á leiksýningu í gærkvöldi "Alveg brilljant skilnaður" með Eddu Björgvins...... alveg brilljant og frábært framtak hjá Eddu en andvirði miðanna sem seldust á þessa sýningu runnu til fjölskyldu Siggu heitinnar. Það var uppselt - aldeilis frábært.

Jæja nú er að hefjast ný vinnuvika, og síðasta vika grunnskóla Borgarfjarðar þetta skólaár. Ég er að fara ásamt nokkrum foreldrum með 6. bekk í sumarbústað seinnipartinn í dag upp í SKógarkot, þar sem markmiðið er að leika sér og hafa gaman saman, gist verður í eina nótt og komið aftur í skólann fyrir hádegi á morgun Glottandi 

 
Silla
kvitti kvitti kvitti... :)
Innilega til hamingju með Hauk.. aldeilis frábært!!! Kíkjum við tækifæri
Kv Silla.
#1
26. maí 2008 klukkan 13:39
 
Sú ráđagóđa
Hæ, þetta er aldeilis flott með tónleikana. Ég, pabbi þinn, Silla og Gummi eigum líka miða.
Kv. mamma
#2
27. maí 2008 klukkan 09:45

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.