Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Spennan magnast og helgin framundan

22. maí 2008 klukkan 08:30
Spennan magnast gríðarlega....hverjir komast áfram í júró í kvöld???

Helgin verður skrautleg hjá okkur, Haukur er að fara að útskrifast á laugardag, júróvísjón um kvöldið, gönguferð í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði kl 11 á sunnudag og leikhús um kvöldið í Borgarleikhúsinu. Sýningin sem við erum að fara á er "Brilljant skilnaður" og er styrktarsýning en fjölskylda Siggu frænku Hauks, (sem dó í vetur frá manni og fjórum börnum) nýtur góðs af þessari sýningu. Flott framtak hjá Eddu Björgvins.
Við verðum semsagt eins og þeytispjöld um helgina Hlæjandi

Góða skemmtun í kvöld!!!
 
Djusígella
Góða skemmtun um helgina. Það er bara gaman að hafa nóg að gera. En maður er þessa dagana eins og kýrnar, maður verður snarvitlaus að njóta veðurblíðunnar og að vera úti á vorin. Nóg að gera á öllum vígstöðvum. Vinnan, skólarnir að klárast, útskriftir, afmæli og fl. Ég er einmitt að fara í útskrift á föstudaginn hjá systurdóttur minni, leikhús um kvöldið, Eurovisin á laugardaginn 80 ára afmæli á sunnudaginn og 89 ára afmæli ömmu á mánudaginn. Þannig að það er sko nóg um að vera um helgina.

Hafið það gott og njótið helgarinnar!
Kv. Djúsígella
#1
22. maí 2008 klukkan 12:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.